Best að fara að blogga... sit núna fyrir framan tölvuna hennar Sahar og tala við fólk "life". Stelpan á nebbla webcam, ekkert smá sniðugt tæki! En vá það er vika síðan hér var skrifað síðast... og margt getur gerst á viku... fór í saunapartý á föstudagskvöldið rosa gaman, byrjaði um kl. 21 og um kl. 1 var ég búin ad fá nóg af saunu svo ég ákvað að "djoina" fólkið i hinu partíinu... þ.e. partíid sem var ekki í saununni... verst að ég gleymdi að klæða mig þegar ég tók þessa ákvórdun, svo ég var ansi lengi ansi fáklædd innan um aðra partígesti... inni sem úti... Daginn eftir fórum við Tobias, Katja og Ute í "hikingtour" hérna ekki langt frá Turku Það var voða gaman og tókst okkur meira segja að villast, sem var ekki síst skemmtilegt! Eftir labbið fórum við Tobias á fiskmarkað hér í Turku, sársvöng og átum við allt sem að kjafti kom, mesta lostætið voru litlir steiktir makrílar, stökkir og saltir... namminamm! Um kvöldið höfðum við svo ákveðið að elda fyrir Guðna og Camillu heima hjá theim og var Tobias að sjálfsögðu potturinn og pannan í matseldinni. Eldaði dýrindis lasagna, grænmetislasagna að sjálfsögðu, og var þetta þad mest heimatilbúna lasagna sem ég hef smakkað, meira að segja pastað var búið til á staðnum. Verst hvað ég var búin að borða mikið af makríl þegar við komum til Guðna og Camillu að ég náði ekki að njóta lasagnasins eins og því bar! ...jæja, verð að þjóta, er að fara í partí með líffrædinemunum hérna, klára þessa færslu á morgun!