Katrín í Namibíu
 
 
1.10.03
Það getur stundum verið einmanalegt að hjóla einn í skólann þessa sjö kílometra. Maður fer að taka eftir hverju smáatriði og einfaldir hlutir fara að verða ansi spennandi... í dag vakti t.d. athygli mína stór og loðinn, svartur snigill sem sniglaðist yfir hjólabrautina, verulega sætur... auk þess hefur grænt einmana (eða einhjóla) hjól í vegkantinum verið fastur liður á hjólaleiðinni minni, þangað til í morgun, þá var það alltíeinu horfið, hvert veit ég ekki en hjólaþjófar leynast víða, líka í Finnlandi...

Var annars að koma úr prófi í vefjafræði... ætla að segja sem minnst um frammistöðu mína en við getum orðað það soleis að skólinn er töluvert aukaatriði hérna... það er svo margt annað skemmtilegra að gerast! Mér varð einmitt hugsað til þess í þessu prófi að skemmtilegasta próf sem ég hef tekið heima á íslandi var próf í verklegri vefjafrædi, veit ekki hvort ég get sagt það sama um þetta próf...

Svo er ég byrjuð í kór. Það fór ekki svo að önnin mín hér í Finnlandi yrði kórlausa önnin mín eins og ég hafði gert ráð fyrir... Fyrsta kóræfingin var í gær og það var alveg ossalega gaman. Þetta virðist vera hinn vænsti félagsskapur og alveg feikinóg að gera, ekki síst í félagslífinu. Kórinn á sinn eiginn pöbb og eftir hverja kóræfingu er safnast saman þar og drukkið á finnska vísu... þetta er nú alveg til eftirbreytni:) Skreytingarnar á pöbbnum vöktu verulega athygli mína og þá helst forláta skilti á hinu ástkæra ylhýra. Eitt minnti fólk á ad þurrka sér vel því gólfið gæti verið hált og annað benti fólki á að engin ábyrgð væri tekin á verðmætum... Efast um að innfæddir taki mikið mark á þessum skilaboðum þar sem fæstir þeirra skilja ísklensku... eniveis... ég er allavega afar sátt við mig í þessum félagsskap... nú er ég komin heim:)

Svona að lokum langar mig að nota tækifærið og óska fólki til hamingju með ammælin sín... Rósa sósa á ammæli í dag, til hamingju snúllan mín, hérna færðu riiisa ammælisknús!!! Svo átti Guðni ammæli í gær, til hamingju Guðni, þú færð líka knús en það verður alvöru því ég ætla ad koma í veisluna þína á eftir! ...og svo má ekki gleyma pabba gamla sem átti ammæli í gær...til hamingju pabbi minn! Vona að ég sé ekki ad gleyma neinum! Lifið heil...



Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel