Katrín í Namibíu
 
 
12.10.03
Jæja, bloggframmistaða mín er nú ekki til eftirbreytni, tæp vika liðin síðan ég kom frá Lapplandi og ekkert komið á netið! Nú verður bætt úr því!
Lapplandsferðin var náttla æði... þrátt fyrir að hafa verið aðeins of sein fyrir haustlitina, sem var megintilgangur ferðarinnar a.m.k. að Tobiasar mati. En við létum okkur ekki leiðast, bara enn meiri ástæda til að njóta yndislega kotsins okkar. Þetta var sko fyrsta flokks kot, að sjálfsögðu sauna, eins og ekta finnsku koti sæmir og ekki nema 9 metrar að stöðuvatninu svo við tókum drjúgan tíma kvölds og morgna í saunu og "sund". Verulega indælt og hressandi. Allir dagar ættu að byrja og enda á saunu og köldu badi. Þetta er sérlega magnþrungin upplifun á kvöldin... ad sitja úti undir stjörnubjörtum hausthimni i Lapplandi nakin með bjór í hendi er ólýsanlegt! Milli þess sem við voum í saunu og ísbaði sátum við fyrir framan arinninn og létum okkur líða vel. Að sjálfsögðu kíktum við aðeins á Lapplensku náttúruna líka... reyndar var sú tilraun frekar misheppnuð, hittum akkurat á íslenskasta skóginn í Lapplandi held ég bara, þ.e. þann minnsta. Svo við dvöldum nú ekki lengi þar. Hápunktur ferðarinnar var nú samt þegar við Tobias fengum smá flippkast og réðumst á Þórhildi með skærum og klipptum af henni allt hárið! Hún leit sko mun betur út á eftir og ég er bara alvarlega að spá í að leggja þetta fyrir mig sem aukabúgrein:) ...þið getið byrjað að panta tíma í jólaklippinguna ef þið viljið;) P.s. Til hamingju med ammælið elsku Elín!
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel