Þessi helgi var menningarhelgin mín... fór á sinfoníutónleika á föstudagskvöldið með Þórhildi, Tóbíasi, Olaf (þýskur) og Yvonne (líka þýsk). Á eftir fórum við svo á pöbbarölt um glæponapöbbana á háskólasvæðinu þar sem maður fær (næstum) borgað fyrir að drekka bjór... Á laugardagskvöldið var svo matarboð hjá Yvonne, borðuðum saman lax og að sjálfsögðu var Íslendingurinn í hópnum látinn sjá um matseldina... ég meina allir Íslendingar eru náttla fiskexpertar og ég er engin undantekning á því... hehemm...;) Hinn menningarviðburðurinn var svo á sunnudaginn þegar við Olaf og Yvonne fórum á listasýningu í modern art safninu hérna. Þar voru m.a. verk eftir ekki ómerkari listamenn en Andy Warhol. Eftir listasýninguna bauð Olaf okkur í mat, eldaði dýrindis súpu úr bökuðum baunum... sniðug lausn fyrir fátæka námsmenn. Auk þess brenndi hann alla íslensku diskana mína... hann er einn af þessum Íslandsvinum, fór m.a.s. einn í þriggja vikna ferðalag um Ísland sumarið 2001 og var alveg heillaður af fegurð landsins... Eniveis... sunnudagurinn endaði á matarklúbbi hjá Kötju. Hún bauð upp á dýrindis pizzu að alþjóðlegum sið... næsti matarklúbbur verður hjá okkur Þorhildi, við ætlum að kenna úglendingunum að borða ekta Íslenska kjötsúpu... Tobias grænmetisæta var ekkert voða hrifinn þegar hann heyrði það en hann verður þá bara að veiða kjötbitana úr...