Katrín í Namibíu
 
 
31.10.03
Var að koma úr verklegum tíma í meðhöndlun tilraunadýra... sem fólst meðal annars í því að sprauta rottur og mýs, skera þær upp og sauma saman aftur, afar fróðlegt og spennandi! Nú er ég sumsé komin í helgarfrí sem er ansi skemmtileg tilfinning:) Helgin er ekki alveg plönuð endanlega en ég býst við að fara í laugardagsbíltúr með litlu fjölskyldunni minni á morgun og svo er líklega íslenskur hittingur annað kvóld. Segi ykkur betur frá því síðar. Í gær fór ég í heimsókn til hennar Hönnu en við eigum það sameiginlegt að þekkja Eike Schnall (kórfélagi minn úr Mótettukórnum og íslenskukennari hennar í þýskalandi) og fannst okkur geðveikt sniðugt að senda honum tölvupóst og segja honum frá þessari ansi sniðugu tilviljun... ég býð spennt eftir svari...:) Annars bíd ég enn spenntari eftir næstkomandi miðvikudagsmorgni... er á leið til Rússlands! Þetta er vikuferð og stefnum við á að fara bæði til St. Pétursborgar og Moskvu... jibbííí! Ferðin var reyndar ansi dýru verði keypt, ekki péningalega séd (kostaði sama og ekki neitt) heldur einingalega séð. Var búin að skrá mig í stóran og sérstaklega áhugaverðan rannsóknarkúrs í lífeðlisfræaði sem ég (grínlaust) hlakkaði mikið til að taka. Mér til mikils ama er verulega ströng mætingarskylda í kúrsinum og kennarinn tók það ekki í mál að ég myndi sleppa heilum 4 dögum... þó ég sé brosandi skiptineminn þá kemst ég nú ekki upp með allt... samt næstum allt... ætli helginni sé ekki vel varið í að blaða í kennsluskránni og sjá hvort ég finni einhvern annan spennandi kúrs sem ekki er með svona gríðarlegri mætingarskyldu... vona að leitin beri árangur!

Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel