Katrín í Namibíu
 
 
12.11.03
Er komin heim frá Rússlandi heilu og höldnu! Þetta var rosaleg ferð lítið sofið og stanslaust prógram allan sólarhringinn! Hér á eftir kemur ferðasagan...

Lögðum af stað klukkan sex miðvikudagsmorguninn fimmta nóvember. Eyddum síðasta hluta kvöldsins á undan á SparBar, hverfispöbbnum, í góðum gír eftir stranga kóræfingu, fund og niðurpökkun. Það var talsvert erfitt að vakna klukkan fimm um morguninn (eða nóttina öllu heldur) en það hafðist og beið leigubíll eftir okkur Þórhildi fyrir utan húsið okkar klukkan 5:30 sem brunaði með okkur á Kauppatori (=markaðstorgið). Þar skelltum við dótinu okkar í risa rútu á tveimur hæðum sem átti eftir að verða heimilið okkar næstu vikuna. Klukkan sex var svo lagt í hann til Rússlands og var stefnan tekin á St. Pétursborg. Þangað komum við klukkan níu um kvöldið, renndum í hlað á Sovetsky hinu æsta technohoteli, soldið úrvinda en í vel tilbúin í að kanna króka borgarinnar og fórum við beint í bæinn. Fórum á veitingastað í þeim tilgangi að fá okkur rússneskan bjór en okkur til mikils ama var ekki sEldUr bjÓr þar... svo við neyddumst til að láta það gott heita... þetta reyndist reyndar verða okkar eini bjórlausi dagur þar í borg... en meira um það síðar.

Daginn eftir vöknuðum við snemma og fórum í sightseeing tour um borgina. Þetta er ossa falleg borg en soldið skítug... ekkert nema skítugar lödur á götunum, skítugir rafknúnir strætóar og skítug hús, svo borgin er fremur grá um að litast. Byggingarnar eru samt hver annari fallegri en þarfnast samt viðhalds. Túrinn endaði í hinu fræga Hermitage safni sem er risastórt og börðum við þar augum listaverk frá ýmsum tímum eftir ýmsa fræga listamenn. Ég var mest heilluð af verkum Matisse... hann er soldið mikið æði. Eftir safnið fórum við á kvöldverðarhlaðborð á technohótelinu okkar og svo á óperuna La Boheme eftir Puccini um kvöldið í félagsskap tveggja Claudia frá þýskalandi og Andrews og Egans frá Englandi (sem áttu eftir að verða okkar bestu vinir er á ferðina leið). Magnþrungin upplifun að fara á óperu í Rússlandi! Kvöldið enduðum við svo á írskum pöbb í hjarta St. Pétursborgar, þar fengum við loks Rússneskan bjór!

Daginn eftir vöknuðum við líka snemma og lá leiðin í höll Katrínar miklu nöfnu minnar. Þetta var náttla engin smásmíð og vorum við leidd milli herbergja hvert öðru glæsilegra. Þurftum reyndar að bíða heillengi í röð fyrir utan í skítakulda og sýndum við Íslendingarnir fólkinu hvernig maður klæðir sig í kulda, á peysunni að krókna, en sögðum að sjálfsögðu engum frá því og töluðum um hvað væri nú alltaf hlýtt í úglöndum! Eftir að hafa skoðað leyndardóma hallar Katrínar miklu kíktum við á the Fortress of St. Petersburg og vorum þar dágóðan tíma. Fengum okkur að borða þar dýrindismáltíð á afar skemmtilegum veitingastað drekkandi hvítan Rússa að Rússneskum sið:) Gáfum okkur reyndar aðeins of langan tíma í át og drykkju, rönkuðum ekki við okkur fyrr en rétt fyrir kl. sex en við áttum að mæta í rútuna klukkan sex sem ætlaði að keyra með okkur á rússneskt þjóðdansashow. Svo við hlupum af stað í orðsins fyllstu og hlupum eins og við ættum líf okkar að leysa alla leið að Dómkirkju heilags Ísaks þar sem rútan átti að bíða... þegar þangað kom 5 mínútur yfir 6 horfðum við á eftir rútunni renna úr hlaði... það var að sjálfsögðu smá svekk en við tókum bara taxa og vorum komnar á sama tíma og rútan á showið. Þetta var hið vænsta show, voða gaman að sjá ekta rússneska dansa og heyra ekta rússneska þjóðsöngva. Að showinu loknu fórum við í rútuna og við tók 12 tíma keyrsla til Moskvu... ég svaf ansi vel mestalla leiðina á rútugólfinu í félagsskap fóta frá hinum ýmsu heimshornum...

Þegar ég vaknaði á ný var ég komin til Moskvu. Mögnuð tilfinning að sofna í St. Pétursborg og vakna í Moskvu. Það fyrsta sem við gerðum þegar þangað kom var að stíga niður á Rauða torgið, hið eina sanna! Fórum svo í sightseeing tour um Moskvu sem er hreint ótrúleg borg. Renndum svo í hlað á hótelinu okkar sem er engin smásmíð...á 29 hæðum og ein 7 annara bygginga af sama tagi í borginni. Þangað hentum við farangrinum okkar og héldum svo í okkar eigin túr um Moskvu... heimsóttum Puskhin safnið (þar sem allt starfsfólkið virtist hafa eitthvað á móti Þórhildi) og fórum svo úr að borða á ævintýraveitingastað og brögðuðum furðulegan en afar bragðgóðan rússneskan mat. Héldum svo heim á hótel, sátum smá stund á hótelpöbbnum og enduðum daginn á því að taka lyftun upp á 29. hæð og skoðuðum hið magnþrungna útsýni yfir borgina.

Jæja... held ég verði að taka pásu í skrifum mínum núna! seinni hluti sögunnar kemur næst, þeir sem hafa komist alla leið hingað og haft gaman af geta beðið spenntir (en hinir að sjálfsögðu ekki)... Bæ í bili!



Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel