Katrín í Namibíu
 
 
24.11.03
jæja... lenge siden sist... var að hjóla downtown í snjó og slabbi og gekk það bara furðuvel. Stellan mín stóð sig eins og hetja og sá til þess að ég kæmist heilu og höldnu á leidarenda. Það er svo sannarlega kominn vetur í Finnlandi núna. Þegar ég vaknaði á laugardagsmorguninn var allt hvítt, þaðvar yndislega jólalegt.

Um helgina komu Andrew og Egan, vinir okkar frá Englandi, í heimsókn (gaurarnir sem vid kynntumst í Rússlandi, þeir eru sko skiptinemar í Tampere...) Þeir komu síðdegis á föstudag í þeim tilgangi ad sjá enska þjódlagahljómsveit spila hér í Turku svo vid ákváðum að gera Rússlands reunion úr þessu og hóuðum við Þórhildur í Claudiurnar tvær, en við sex mynduðum group-of-six í Rússlandsferðinni. Það var voða gaman að sameinast á ný og meðal annars rifja upp Rússlandsupplifanirnar. Auk þess slóst bróðir annarar Claudiunnar í hópinn og að sjálfsögðu hann Tobias líka. Daginn eftir var svo hair-cut-day þar sem ég lofaði víst (eftir nokkra bjóra) að klippa Egan og Alex (bróður Claudiu). Svo ég breytti íbúðinni okkar í hárgreiðslustofu í nokkra klukkutíma... ég verð nú að segja að mér fannst Egan ansi kræfur þegar hann borgaði fyrir klippinguna með rauðvínsflösku sem hann opnaði áður en ég byrjaði ad klippa hann... hmmm... En allavega kúnnarnir fóru ánægðir heim, með styttra hár og bros á vör:)

Eftir klipperíið fórum við í bæinn, kíktum í bíó og fórum svo á okkar annað heimili, Blanko. Það verður hérmeð að viðurkennast að letin hefur oftast yfirhöndina þegar þangað er komið og nenntum við Tobias og Þórhildur ekki að hreyfa okkur og sendum gestina okkar eina á lestarstöðina... held their hafi nú fundið hana sjálfir, a.m.k. hafa þeir ekki enn látið vita af neinu öðru... Við letingjarnir sátum sumsé á Blanko þar til hungrið var að drepa okkur, skokkuðum þá á kínverskan veitingastað og átum okkur södd. Kvöldið enduðum við þremenningarnir svo heima hjá Þórhildi yfir myndinni sígildu Alice in Wonderland með 1,3 kg af irtokarit nammi! ...namminamm...

Sunnudagurinn er ekki í frásögur færandi... lestur, tiltekt, göngutúr, endurheimt fata... snemma að sofa... en nú þarf ég víst að fara að hætta þessum skrifum, er að fara að syngja á tónleikum í Ekenas og þarf að fara að skokka út í "Sibbe" (Sibeliusarsafnið) þar sem rútan bíður.

Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel