Katrín í Namibíu
 
 
12.12.03
Endir á klippikvöldi... nú er hárið mitt aðeins styttra því í þetta skiptið var það ég sem varð fyrir barðinu á skærunum... Þórhildur og Tobias urðu nú að borga fyrir sig áður en ég stig af til Íslands... (vona að þú fáir ekki stórt sjokk Inga) en ég er frekar sátt við þessa nýju klippingu:)

Annars var ég að klára síðasta prófið mitt í dag, dýraatferlisfræði, svo nú er ég komin í JóLaFRÍÍÍ! Það er svo gaman, nú ætla ég bara að gera eitthvað jólalegt þangað til ég kem heim... byrjuðum ágætlega í kvöld þegar við fengum okkur suomilainen glögi, piparkaku ja aurajuusto (eða finnskt glögg og piparkökur með gráðosti) namminamm... þetta er það finnskasta og jólalegasta sem er til hérna í Finnlandi...

Á sunnudagskvöldið ætlum við Þórhildur að hafa lítið partý fyrir alla úglendingana hérna. Þórhildur fékk sendar byrgðir af harðfisk og söl og ætlum við að leyfa úglendingunum að smakka. Höfum strax fengið athugasemdir eins og... "do you really eat this slimy seawead!", "and when do you put the salt on it?" og "does everybody have a fish hanging out of the balcany to dry it...?" sem við reynum að svara eftir bestu getu. Verður spennandi að sjá hvernig fólkinu á eftir að líka við þennan furðulega mat...

Fór með Irene á hennar heimaslóðir í síðustu viku. Hún er semsagt frá lítilli eyju 150 km suður af Turku. Til að komast þangað þarf maður að taka tvær ferjur og vorum við um 3 tíma á leiðinni. Eyjan er ossa sæt, frekar lítil, með fullt af litlum rauðum húsum í stíl sem ég myndi segja að væri ekta sænskur en Irene sagði að væri finnskur svo við komumst að þeirri niðurstöðu að hann væri svona finnlandssænskur... á eyjunni dvöldum við í einn sólarhring og sáum meðal annars um allan póstútburð til eyjaskeggja en mamma Irene sér um pósthúsið á eyjunni.

Síðasta föstudag var Tobias með matarboð handa okkur Þórhildi og Maríu vinkonu sinni. Hann eldaði þýskt krautkrapfen sem smakkaðist bara voða vel. Með matnum drukkum við jah... nokkrar rauðvínsflöskur og... soldið meira og hmmm... fórum svo í partí og já, það var voða gaman hjá okkur... Daginn eftir, sem var svo mikið sem þjóðhátíðardagur Finna, vorum við afar þung á okkur og öll plön um að fara í heimboð til Irene og þýskt partý til Olafs urðu því miður að engu... svo við enduðum heima hjá Þórhildi yfir myndinni "catch me if you can"...

Annars er frekar fyndið hvernig Finnar halda upp á þjóðhátíðardaginn sinn... forsetinn er með veislu um kvöldið þar sem öllu fræga og merkilega fólkinu er boðið. Þetta er síðan sent út í beinni og er öll þjóðin heima að horfa á fræga fólkið heilsa forsetanum og hvernig það skemmtir sér í veislu hjá forsetanum... gaman, gaman... engin skrúðganga og ekkert djamm eða húllumhæ fyrir almúgann...

En juuu... það er svo stutt þangað til ég kem heim, eftir sex daga verð ég komin til Íslands! Lendi sumsé að kveldi þess 18. des. en legg af stað héðan að kveldi þess 17. Héðan fer ég nebbla með ferju til Stokkhólms þar sem ég dvel í nokkra klukkutíma. Um kl. 4 flýg ég svo til London og þaðan flýg ég til ÍSLANDS! Ég verð nú bara að segja að ég hlakka pínu til... þó þetta sé yndislegt hérna þá verður nú gaman að koma heim og knúsa alla og halda upp á ekta íslensk jól í faðmi fjölskyldunnar...
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel