Katrín í Namibíu
 
 
20.12.03
Ég er komin heim... bara svona að láta ykkur vita... Komst á leiðarenda klukkan að verða tvö aðfaranótt fimmtudags eftir alltof langa heimferð (Turku - Stokkhólmur - London - Keflavík) sem tók allt í allt rúma þrjátíu klukkutíma! Ferðin einkenndist af biðum á lestarstöðvum eða flugvöllumm þar sem mestum tíma var eytt í lestur (�r hérans eftir Arto Paasilinna). Flugvöllurinn Skavsta í Stokkhólmi er sá allra minnsti sem ég hef komið á, minni en Reykjavíkurflugvöllur held ég bara og meira svona eins og braggi sem hefur verið innréttaður, en stendur samt vel fyrir sínu og maður eer alveg laus við langa göngutúra í leit að gate-um og soleis. Sá völlur fór ekki varhluta af lestri mínum ekki frekar en Ryanair þotan sem skilaði mé´r til flugvallarins í Stansted í London. En þrátt fyrir lýjandi ferð gekk hún stóráfallalaust fyrir sig. Hápunktur ferðarinnar og það sem bjargaði mér frá því að einangrast algerlega frá umheiminum með héranum hans Paasilinna var þegar ég var komin til London og var að leita að inntékkunarstað IcelandExpress... þá kom engin önnur en hún Judith elska á móti mér. Ég átti ekki til orð, hún kom eins og sannkölluð himnasending. Þetta voru æðislegir endurfundir eftir langan aðskilnað í ólíkum löndum, hún að koma úr þriggja mánaða dvöl á �talíu. Flugferðin leið á no time og var yndislegt að stíga aftur á íslenska grund og hitta fjölskylduna sem beið með opinn faðminn á vellinum.

En allavega... ég er komin heim, svo nú verður gert hlé á sögunum frá Finnlandi trúlega þar til ég held út á ný, sem verður þann 13. janúar. Þangað til vona ég að ég geti knúsað sem flesta hérna heima á �slandi! Gleðileg jól...
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel