Þá er mitt langa og stranga ferðalag til landsins helga hafið... lagði af stað klukkan 7 í gærkvöldi frá Harittu... það var nú soldið erfitt að kveðja, sérstaklega þá sem eiga ekki eftir að verða í Turku eftir áramót... það var líka soldið erfitt að skilja við Þórhildi fyrir utan strætóinn og Tobias sem var á kafi í próflestri...
Tók ferjuna Isabellu frá Turku klukkan 9 og kom að landi í Stokkhólmi í morgun og ferð mín á klakann því um þad bil hálfnuð... Héðan liggur leiðin svo til London og þaðan til ReYkjAvÍkuR!!! Held ég setji persónulegt tímamet í höfuðborgaheimsóknum, þrjár höfuðborgir á innan við sólarhring...! Dóri kallaði þetta að fara lengri leidina en eins og þið vitið þá elska ég að gera mál úr hlutunum svo þetta er kannski bara meira svona mín leið... Hlakka til að hitta ykkur á ISLANDI yfir jólin!!! Kram...