Katrín í Namibíu
 
 
3.12.03
Var að koma úr prófi í heimspeki og kennarinn sagði mér eftir 10 sekúndna yfirlit á prófið að ég hefði náð... gott að vita það:)

Fór í saunu í gær, sem flestum finnst nú kannski ekki í frásögur færandi þar sem ég er í Finnlandi, en sannleikurinn er sá að ég hef ekkert komist oft í saunu hérna, yfirleitt er nebbla alltaf kóræfing þegar saunan í Auringonosu (stúdentagarðarnir þar sem ég bý) er opin, sumsé á þriðjudagskveldum. Nú eru hins vegar allar kóræfingar búnar fyrir jól svo ég get farið að stunda saununa af fullum krafti þá þriðjudaga sem eftir eru fram að heimferð, en þeir eru nú ekkert mjög margir... allavega... lokahnykkur kórstarfsins var um helgina þegar við héldum tvenna súperdúper tónleika, föstudags og laugardagskvöld. Þetta er það jólalegasta sem ég hef gert hérna í Finnlandi, það var yndislegt að syngja hallelujah kórinn hans Handels með synfoníuhljómsveit fyrir fullum sal áhorfenda... Mér er sagt af áheyrendum að þeir hafi heppnast vel svo ég bara trúi því ...allavega hefðu þeir ekki getað heppnast betur hvað mína upplifun varðar:)

Eftir föstudagstónleikana buðum við Þórhildur og Tóbías okkur (sjálf) til Camillu og Guðna, elduðum handa þeim salsadipp og buðum upp á gin&tonic. Camilla var að baka finnskar jólastjörnur þegar við komum og bauð auk þess upp á finnskt jólaglögg. Jólaglögg er eitthvað sem Finnar geta ekki verið án fyrir jólin og er hefð hjá Abo Akademi (skólanum mínum) að hafa s.k. glöggrudna fyrstu helgina í aðventu, en þá standa stúdentafélögin fyrir sölu jólaglöggs fyrir utan skólann milli klukkan 2 og 4 um nóttina. Glöggrundan í ár var einmitt aðfaranótt laugardags og héldum við fimmmenningarnir þangað eftir að hafa étið okkur södd af salsa og jólastjörnum. Það var ofsa gaman að taka þátt í þessum skemmtilega sið, allir finnarnir mættu í "hölunum" sínum (sem eru gallar í mismunandi litum, einn litur fyrir hverja deild, mjög sniðugt) og drukku jólaglögg af áfergju. Klukkan 4 hjóluðum við svo sem leið lá á stationen sem er einn af ólöglegu pöbbunum sem ég hef nú minnst á ádur. Þar dönsuðum við villtan dans við léléga tónlist og héldum svo heim á leið í hellidembu á Stellu, Hvelli og Marin (hjólunum okkar).

Konsertinum á laugardagskvöldið lauk svo með hápunkti ársins í kórstarfinu, julphest! Sabine og Sahar (meðleigjendurnar mínar) saumuðu utan á mig gamalt gardínuefni (sem ádur hefur verið notað í sama tilgangi... manstu Rósa?;)) og var ég íklædd því dressi á julphesten. Ég var mjög sátt við árangurinn:) Julphesten var í sitzformi en sitz er ein helsta skemmtanaformið sem finnlandssvíar nota. Þá sitja allir við langborð, stelpur og strákar til skiptis, og borða, drekka og syngja svaka mikið. Sitzstjórinn rædur öllu, þ.e. hvenær á áð syngja, borða, drekka og jafnvel tala og það er bannað að fara á klóstið nema þegar sitzstjórinn gefur sitt leyfi, annars áttu ekki von á góðu... standa upp á borði og syngja einsöng, takk fyrir takk. Eftir hvert lag áttu að segja skál við þá sem sitja við hliðina á þér og á móti þér og fá þér svo vænan sopa. Ég veit það ekki en mér líður soldið eins og á leikskóla á svona sitzum... fyrir utan að það er haft áfengi um hönd sem er nú ekki venjan á leikskólum...

Á sunnudaginn komst ég svo í enn meira jólaskap... við Sabine bökuðum jólakökur og buðum fólki í sunnudagsjólakaffi... Daginn eftir opnaði ég svo fyrsta gluggann á súkkulaðijóladagatalinu sem Tobias gaf mér... "Brádum koma blessuð jólin..."
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel