Katrín í Namibíu
 
 
23.1.04
Ég skil ekki hvaða leti hefur verið að hrjá mig undanfarið, nú eru 10 dagar sídan ég kvaddi Ísland og enn eru mínar helstu fréttir þær að ég sé komin til Íslands... hmmm... nú verður bætt úr thví. Ég er sumsé komin til Turku aftur. Komst hingað eftir vikuferðalag um Svíþjóð þar sem mín sænska fjölskylda fékk að n-jóta nærveru minnar um stund, semsagt Lund og Linköping. Síðasta sólarhringnum eyddi ég í lest og ferju sem skilaði mér til Turku klukkan átta á mánudagsmorgni. Ég var komin á mátulegum tíma fyrir fyrsta fyrirlesturinn sem var klukkan tíu sama dag... Lítið hefur breyst síðan ég kvaddi Turku fyrir jól, helsti munurinn er að nú er slatti af skiptinemunum sem voru hér fyrir jól farinn sem setur óneitanlega smá gat í tilveruna, en flest mikilvægasta fólkið er nú hér enn...

Í gær gerði ég soldið sniðugt, ég fór ég á kaffihús með henni Aino sem er finnsk stelpa sem ég kynntist í Frakklandi fyrir tæpum sex árum síðan. Fyrir algjöra tilviljun fann ég kort sem hún hafði sent mér heima á Selfossi sem hafði meðal annars að geyma e-mail adressuna hennar svo ég ákvað að senda henni mail. Hún svaraði um hæl, sagðist búa í Turku, og ákváðum við að hittast á Blanko í gær. Þad var mjög gaman að sjá hana aftur og sátum við og spjölluðum í 4 klukkutíma.

En jæja, held ég segi þetta nóg í bili, er að hugsa um að drífa mig heim í saunu... ekki amalegt að fara í saunu eftir 7 kílómetra hjólatúr í 10 stiga frosti.

Näkemin...
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel