Katrín í Namibíu
 
 
17.2.04
Það er ekkert lát á hamingjuóskunum til hennar Kristínar litlu systur... nú á stelpan afmæli... INNILEGA TIL HAMINGJU MED 13 ÁRA AFMÆLID STÓRA STELPA! Litla systir bara orðin táningur... man eftir fæðingardeginum hennar eins og hann hafi verið í gær! Nú tala ég eins og gömul kona, kannski það sé af því að ég er að eldast, á morgun verð ég nebbla heilu ári eldri en ég er í dag...

Annars áttum við fína helgi í Helsinki, gengum af okkur sólana og skoðuðum merkileg fyrirbæri sem þar er að finna. Meðal annars "The Rock Church" sem ég hélt í fyrstu að væri rokkkyrkja sem spilaði eingöngu rokktónlist í guðsþjónustum. Málið er að kirkjan er byggð inn í klett svo íslensk þýðing væri Klettakirkjan en ekki rokkkirkjan. Ég varð samt alls ekki fyrir vonbrigðum með kirkjuna, magnað að fá sér miðdegislúr þar undir tónum Trölladansins hans Grieg. Eftir að hafa skoðað rokkkirkjuna lá leið okkar í Café Torni, sem er hæsta kaffihús í Helsinki, þ.e. þaðan er einna besta útsýnið yfir borgina er mér sagt. Útsýnisis nýtur maður samt ekki að fullu nema maður fari á klósettið, þar getur maður setið óáreittur og horft yfir Helsinki út um risa glugga, eitthvað sem enginn sem heimsækir Helsinki ætti að láta framhjá sér fara. Nýlistasafnið, dómkirkjan, rétttrúnaðarkirkjan, eyjan Suomenlinna, Traktóraveitingastaðurinn Zetor (sem er í eigu Leningrað Cowboys meðlima), byggingar Alvars AAlto er meðal þess sem setti svip sinn á ferðina auk okkar einskæru óheppni í leit að skemmtilegum börum. Eina heppnin hvað baraleit varðaði var þegar við gerðum dauðaleit að bar með live Jimi Hendrix músík... eftir að hafa spurt til vegar og fengið flóknar upplýsingar um hvernig best væri að komast þangað ákváðum við að hætta að eltast við Hendrix og fara bara inn á barinn sem við stóðum fyrir utan... og viti menn... við vorum komin á Hendrix pubbinn... svona er lífið stundum fyndið.

Eftir langan göngutúr um eyjuna Suomenlinna á Sunnudeginum héldum við aftur til Turku. Helgin var samt ekki búin hjá mér því um kvöldið fór ég á rokna tónleika með Painstream og fleiri hljómsveitum hér í Turku. Skemmti mér konunglega þar fram á rauða nótt í góðum félagskap!

En jæja... þetta gengur víst ekki lengur, verð að fara að lesa soldið meira um hryggleysingjana mína, próf á næsta leyti...

Puss och kram till er alla!

P.s. Ykkur er öllum boðið í afmæliskaffi annað kvöld klukkan átta... heimilisfangið er Ahvenanmaankatu 2 s 63, 20740 Turku, Finnland...
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel