Góðan daginn gott fólk... nú skal bloggað. Hef ekki verið sérlega dugleg í þeim efnum á nýju ári, en ég ætla nú að reyna að bæta mig.
Um helgina fór ég á stugveckoslut, eða nokkurskonar sumarbústaðarferð fyrir skiptinemana. Einhverra hluta vegna var ég skráð í ferðina sem tutor, þ.e. sem Finni, svo ég lenti í að hjálpa til við að gefa liðinu að borða og sjá um leiki og svona. Fílaði mig geysilega mikilvæga. Í sumarbústaðarferðinni gerði ég í fyrsta skiptið það sem ég hélt að væri daglegt brauð og vel það hér í Finnlandi, fór í saunu og velti mér svo uppúr nýföllnum snjó... þetta er alveg mögnuð tilfinning, eitthvað sem allir verða að prófa! Kom aftur til Turku um kaffileytið í gær, þá höfðu Yvonne og Janina bakað köku og buðu þær okkur Olaf, Freddy og Berenike i kaffi... þetta er nú kannski ekki í frásögur færandi nema að Janina minntist allt í einu á að það væri íslendingur fluttur í húsið og bauðst hún til að fara med mér og heilsa uppá hann. Svo við fórum öll hersingin og bönkuðum uppá. Íslendingurinn, sem heitir Sigurður, varð voða hissa, en glaður og spjölluðum við heillengi saman á hinu ástkaera ylhýra. Hann er sumsé leikari sem fékk alltíeinu gríðarlegan áhuga á finnsku svo hann skellti sér í finnskunám fyrir nokkrum árum og er nú nýlega fluttur til Turku eftir að hafa búið í Vasa um nokkurt skeið. Þótt ótrúlegt megi virðast þá er thetta fyrsti íslendingurinn sem ég hitti hérna fyrir utan Þórhildi og Guðna! Hef ekki einu sinni heyrt talaða íslensku, þetta eru svo mikil úglönd. Eftir kaffiboðið var okkur Þórhildi boðið í mat hjá Camillu og Guðna, fengum dýrindis grænmetisrétt að borða og bakkelsi í eftirmat... ég verð bara að taka það fram að- hún Camilla er sko heimsins besti kokkur og át ég á mig gat og vel það, sem betur fer vorum við (ótrúlegt en satt) ekki á hjóli í þetta skiptið ég efast nebbla um að ég hefði komist áfram vegna þyngsla... átakið byrjar á morgun... hehemm... en nú verð ég víst að fara að segja þetta gott af bloggi í bili, er búin að hanga alltof lengi í tölvuverinu. En bráðum verða dagar mínir í tölvuverinu taldir, stefnan er nebbla að kaupa tölvu svo þá get ég farið að tölvunörrast heima. Sú sem mér líst einna best á er HP presario 2520... hefur einhver eitthvað af þeim ágæta grip að segja?