Katrín í Namibíu
 
 
26.2.04
Hér í Finnlandi eru töluð tvö opinber tungumál, finnska (94%) og sænska (6%). Í skólanum mínum, Ã…bo Akademi, er bara töluð sænska þannig að oft á ég bágt með að trúa því að ég sé virkilega í Finnlandi þar sem suma daga heyri ég varla stakt finnskt orð. Að vera sænskumælandi Finni getur oft á tíðum verið erfitt þar sem á mörgum opinberum stöðum er ekki töluð sænska, þrátt fyrir að ný finnsk lög segi að á hverjum opinberum stað verði að vera a.m.k. ein manneskja sem talar sænsku. Sænskumælandi Finnar verða því að bíta í það súra að fá ekki alltaf þjónustu á sínu móðurmáli og verða því að geta bjargað sér á finnsku.

Síðasta þriðjudag, á sprengidag, var mikil hátíð hér Finnlandi. Finnar skella bolludegi, sprengidegi og öskudegi saman í einn dag, fastlagstisdag, sem þeir halda hátíðlegan á sprengidag. Þá eru borðaðar bollur og baunasúpa og fólk sprellar og slettir úr klaufunum. Hæst ber hið svokallaða pulkaturné, sem er snjóþoturallí á milli deilda háskólans. Verðlaun eru veitt fyrir frumleika í snjóþotugerð (þær eiga sko að vera heimatilbúnar) og hraða. Margt var um manninn á keppninni í ár og þoturnar hver annari frumlegri. Guðfræðinemarnir höfðu sigur úr bítum, sendu sjálfan Jesús í rallíið ásamt her engla sem renndi sér niður brekkuna í fjárhúsi. Um kvöldið var svo mikið sprell, risa partý á KÃ¥ren og allir leynibarirnir í Ã…bo Akademi opnir.

Þetta kvöld fór ég að djamma með Laura og félögum sem allir eru finnskumælandi og tala varla stakt sænskt orð. Eftir að hafa kannað barina í Turun Yliopisto (finnskumælandi háskólinn) og komist að því að stúdentarnir þar voru ekkert að láta sjá sig ákváðum við að kanna leynibarina í Ã…bo Akademi. Á fyrsta barnum sem við prófuðum fengum við ekki að koma inn þar sem hann var eingöngu opinn viðskipta og hagfræðinemum. Ég lét það gott heita og sagði við liðið að við skyldum þá bara tékka á þeim næsta. Ég var frekar hissa þegar ég sá hvernig brúnin á Laura fór smátt og smátt að síga. Svo fór hann að blóta og sagði að helv... hafi ekki hleypt okkur inn af því hann talaði finnsku. Ég reyndi að leiðrétta þann misskilng og tjáði honum að barinn væri eingöngu opinn fyrir viðskipta og hagfræðinema. Lauri taldi það ekki gilda ástæðu, þetta væri eingöngu vegna þess að þeir væru finnskumælandi. Á næsta bar sem við prófuðum komumst við inn, Lauri talaði finnsku við dyravörðinn en var svarað á sænsku... Lauri pantaði sér bjór á finnsku en var svarað á sænsku... alls staðar var fólk í hörkusamræðum á sænsku. Þetta fór fyrir brjóstið á honum, hann hafði aldrei lent í því áður að vera hafnað svona rosalega í sínu eigin landi bara fyrir það að tala móðurmálið sitt (sem eftir allt er Finnska og í Finnlandi á maður nú að tala finnsku ekki satt?) ...mér varð hugsað til allra þeirra Finna sem hafa sænsku að móðurmáli og þurfa að mæta þessari mótspyrnu á hverjum degi. Fór t.d. með Hönnu, sænskumælandi vinkonu minni, að kaupa nælur um daginn. Hún byrjaði að tala sænsku en afgreiðslumaðurinn sagðist ekki skilja. Hún reyndi þá á finnsku en mundi ekki hvernig maður segir næla á finnsku svo hún gerði sitt besta við að lýsa því sem hún vildi fá. Afgreiðslumaðurinn horfði á hana með fyrirlitningarsvip og hnussaði eitthvað og spurði hvað hún væri eiginlega að reyna að segja! Þetta er daglegt brauð hjá sænskumælandi minnihlutanum í Finnlandi. Það getur verið erfitt að setja sig í þessar aðstæður, komandi frá landi þar sem allir tala sama mál og ekki einu sinni að finna mallýskur.

Eníveis... kveðjupartí í kvöld því Jochen og Janina eru að yfirgefa okkur... Tampere um helgina þar sem ég ætla bara að liggja í sánu og drekka bjór... í næstu viku sé ég svo fram á aktífari tíma í skólanum, er loks að byrja í almennilegum kúrsum, taugalífeðlisfræði, tölvufræði og kynjafræði svo eitthvað sé nefnt!

P.s. Hvort er sá sem hjólar 30 km í hálfsmetra háum nýföllnum snjó hörkutól eða rugludallur? Ég vildi kalla mig rugludall en Hanna frænka sagði að ég væri hörkutól... ef maður kemst klakklaust á leiðarenda í slíkri færð er kannski réttara að tala um hörkutól en rugludall.
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel