Mig langar ad byrja á því ad óska Kristínu litlu systur minni INNILEGA TIL HAMINGJU MED FRÁBÆRAN ÁRANGUR Á ÍSLANDSMEISTARAMÓTINU Í FIMLEIKUM!!! ...hún er með öðrum orðum Íslandsmeistari í sínum aldursflokki og var í 4. sæti í heildina! Hérna færðu 1000 kossa og riiiiiisa knús frá mér duglega stelpa! Svo langar mig líka að óska elsku mömmu til hamingju með afmælið sem var í gær, þú færð líka kossa og afmælisknús frá mér mamma mín!
Annars er bara allt hið besta að frétta, hér er rooosalega kalt, hef aldrei lent í því áður að augnhárin mín frjósi eða horið í nefinu (þá á ég sko við að það frýs í nefgöngunum, ekki þegar það er komið út). Þetta með augnhárin gæti stafað af mínum einstaklega ofvirku tárakirtlum sem framleiða þvílíkt magn af augnvessa dag hvern að ég þarf virkilega að sannfæra fólk um að allt sé í lagi, ég sé ekkert að gráta sko. Þetta með horið gæti aftur á móti verið vegna þess hvað við íslendingar fáum ósnýtuvænt uppeldi, ég er svona að læra að það er ágætt að snýta sér öðru hverju, meira að segja í tíma eða við matarborðið þó ég hafi nú ekki náð þeim punkti ennþá...
Fór á skauta í massafrostinu í gær, var á leið heim að skrifa ritgerð þegar ég hjólaði í flasið á Olaf. Olaf spurði hvort mig langaði á skauta, ég átti í smá stund í baráttu við samviskuna, en alls ekki lengi, var eiginlega mjög fljót að segja já! Það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom á skauta var reyndar að detta á rassinn en það var bara smá byrjunaróheppni... hélt balans það sem eftir var. Skautuðum í hátt í tvo tíma og ég verð að segja að ég var soldið úrvinda þegar ég kom heim í Harittu eftir 8 km hjólatúr að auki í heimskautakuldanum.
Um helgina fór ég á tónleika, Jazz Lauri og Iiro, finnskir gaurar sem ég komst í kynni við fyrir stuttu, voru að spila og var þetta bara ansi skemmtilegt. Fór í partí hjá Jazz Laura á eftir, sem býr í pínkulítilli, æðislega sætri íbúð og vorum við hátt í tuttugu manns þar, voða gaman. Ég kom... hmmm... frekar seint heim og laugardagurinn var að mestu notaður í svefn... fyrir utan nokkra klukkutíma heima hjá Þórhildi um kvöldið þegar við horfðum á myndina The Pirates of the Carabean.
Framundan er svo ferð til Helsinki, tónleikar með Painstream (hljómsveitin hans Janne), próf í flokkunarfræði hryggleysingja og ritgerð... og afmælið mitt sem er eftir rúma viku... en það er nú ekki í frásögur færandi...
Jæja, þarf að fara ad drífa mig á kóræfingu og joika soldið... Hafið það gott snúllur um allan heim!