Í tilefni þess að einhver stal af okkur einum klukkutíma í nótt ákváðum við Þórhildur að skella okkur á SparBar, hverfispöbbinn okkar hér í Harittu, ég veit að þetta er leim ástæða en ástæðan var líka að okkur fannst sorglegt að sjá dagatalið okkar autt heila helgi (hmmm... hver segir að maður þurfi ástæðu?) ...við héldum glaðar í bragði á SparBar sem er afar sjarmerandi staður með ófáum afar sjarmerandi Finnum sem kunna svo sannarlega að tolla í tískunni (honestly er þetta eins og klippt úr heimildarmynd um afdala, miðaldra Finna sem fer á pöbbinn til að sletta úr klaufunum... sumsé mjög lærdómsríkt). Lentum á sjens með heitustu gaurunum á svæðinu, annar talaði í sífellu um hvað við ættum í skemmtilegum samræðum (sem við túlkuðum reyndar framan af sem góða nótt) og hinn hló í sífellu að bullinu í okkur á afar intressant hátt. Þegar pöbbinn lokaði vorum við sko síður en svo í stuði til að fara heim þannig að eftir að hafa losað okkur við kærastana okkar með grátstafina í kverkunum, réðumst við inná Marie, franska stelpu, sem var félgsskapnum fegin og héldum djamminu áfram. Þar vorum við þangað til við þoldum ekki lengur við því sólin var farin að stinga okkur í augun, hmmm... klukkan langt gengin átta... já, svona óvæntar uppákomur eru alltaf skemmtilegar, svaf ekkert mjög lengi enda kappkostuðu sólargeislarnir við að kitla mig í nefið svo á endanum lét ég undan og dreif mig á fætur... og hér sit ég, krapula ja vösynyt, sólin að gera mig brjálaða ásamt yfirvofandi ritgerðum, verkefnum og prófum... aaargh... held ég verði að fara út í góða veðrið og fá smá innblástur...
Góðar stundir.