Katrín í Namibíu
 
 
21.3.04
Fékk vænan skammt af íslensku og Íslendingum á föstudaginn, tvöfaldur íslenskur hittingur, kaffiboð hjá Margréti og kvöldmatur hjá Camillu og Guðna. Sigurður leikari mætti í kvölmatinn, skemmtilegur kall... gaman að krydda Íslendingaflóruna hérna sem er heldur af skornum skammti... ekki að það sé svo mikill missir, útlendingar eru líka skemmtilegir.

Fór á jazztónleika í gær með Trio Töykeät og U-street all stars, mjög góðir... luralegi píanistinn og nörralegi gítaristinn voru snillingar, man ekki eftir að hafa séð jafnmikla innlifun í tónlistarflutningi, þeir voru æði! Sæti saxófónleikarinn skemmdi nú ekki fyrir, hann var líka mjög góður... Hápunktur hamingju minnar var nú samt þegar ég fann tvífara bleiku bréfaklemmunnar sem ég nota til að renna upp skónum mínum á gólfinu á Kåren, nú á ég eina á hvorn skó... endalaus hamingja!

P.s. neyðist til að búa við það út vikuna að georgeous gaur sofi í næsta herbergi... þetta er vinur kærasta Söshu meðleigjanda og váts... þetta verður erfitt...
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel