Katrín í Namibíu
 
 
14.3.04
Góðan daginn dömur mínar og herrar... Held ég byrji þennan yndislega sunnudag (sem er skínandi hreinn og tær, burtséð frá því sem gerðist í gær, er ég drakk eina flösku eða tvær, og svefninn var ekki svo vær) á að blogga, og taki svo til við verkefnaskrif á fullu, eða eins mikið á fullu og undanfarnir þrír djammdagar bjóða uppá.

Í gærkvöld var ammæli hjá Klöru hans Freddy, veislan var á sitzformi (án strangra reglna) og var hin fínasta, góður matur, góð bolla og skemmtilegt fólk. Við sessunautur minn komumst að því þegar á kvöldið leið að við vorum á sömu kóræfingum í sömu rödd alla helgina án þess að muna hvor eftir annari, auk þess sem við eigum sameiginlega kunningja uppi á Íslandi... gaman að því... Eftir át og drykkju fór fleira fólk að tínast í partíið, hljómsveitin "the dogshit boys" hóf músikspil og náði gamanið hápunkti þegar þeir sungu lagið sívinsæla "vittu, satana, perkele" við góðar undirtektir partígesta, svo góð var undirtekt Freddy að hann ákvað að kaupa sér diskinn.

Á föstudagskvöldið var ég með lítið heimboð. Upphaflega hafði ég ætlað að bjóða Irene í mat en svo var óvænt kóræfing sama kvöld svo ég sagði Irene bara að koma eftir kóræfinguna. Smátt og smátt vissu fleiri og fleiri af þessu svo á endanum komu soldið margir. Ég mætti í mitt eigið boð á sama tíma og aðrir partígestir. Hjólaði eins og brjálæðingur heim af kóræfingunni og var á strætóstoppinu á nákvæmlega sama tíma og strætóinn með allri hersingunni... hehe, þeim fannst soldið skrítið að sjá gestgjafann þegar þau stigu út úr strætó, ég spurði þá bara hvort þau kynnu virkilega ekki að meta það að tekið væri á móti þeim á strætóstoppinu. Boðið fór vel fram, bauð uppá rauðvín og osta, klósettpappír og flöskuopnari í boði Þórhildar auk sængurbúnaðar þar sem þrír boðsgestir ákváðu að gista þegar á nóttina leið. Hélt hina fínustu morgunveislu daginn eftir, pasta með túnfisk og lauk og ávextir í eftirmat, namminamm.

Tónleikar með Laura, Iiro o. co. aðfaranótt fimmtudags voru fyrsti liðurinn í þessari djammtörn, mætti hmmm... nokkuð fersk í skólann daginn eftir miðað við aldur og fyrri störf...

Ætli ég segi þetta ekki gott af sögum í bili, verkefnin bíða...
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel