Hér koma smá fréttir af hinni stórskemmtilegu ferð minni til Tampere síðastliðna helgi. Ástæðan fyrir för minni þangað var uppákoma sem þar fór fram sem kallast SaunaExpressen. Þetta er á vegum Foreningen Norden og virkar þannig að fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum koma saman á einhverjum sniðugum stað í Finnlandi og fara í saunu og drekka bjór og djamma soldið og skoða sig soldið um og svona. Helgin var afar vel heppnuð og var ofsa gaman að spreyta sig aðeins í dönskunni, norskunni og síðast en ekki síst íslenskunni, en fulltrúar Íslands voru hvorki fleiri né færri en sex, sem er víst met (Íslendingarnir voru þó af ýmsu bergi brotnir... einn spánskur og einn danskur, einn búsettur í Svíþjóð og annar í Finnlandi... ansi multicultural þessir Íslendingar). Það Katrínarlegasta við þessa helgi var nú trúlega byrjunin... hmmm... missti af lestinni sem ég ætlaði að taka frá Turku, næsta lest fór ekki fyrr en 3 tímum síðar svo ég var komin aðeins seinna á leiðarenda en ég hafði áætlað... það sem er kannski ennþá Katrínarlegra er að síminn minn hafði dottið í það kvöldið áður og drepist (hann lenti óvart í sömu tösku og allur bjórinn sem var einum of freistandi fyrir hann svo hann opnaði einn og bara datt í það ...maður spyr nú ekki að því með svona finnskan síma). Svo var hann svona rosalega þunnur daginn eftir að það var ekkert hægt að tjónka við hann, þannig að ég gat ekki einu sinni látið vita af seinkuninni minni... en allavega... ég komst á leiðarenda á endanum, fann rétt farfuglaheimili og sameinaðist hópnum sem var hið skemmtilegasta samansafn norðulandabúa á ýmsum aldri. Það markverðasta úr ferðinni held ég að hafi verið ísbaðið okkar, held ég hafi aldrei farið í jafnmikið ísbað... hoppaði sumsé útí 0° heita vök í á eftir 120° heitri saunu... skelfileg tilfinning meðan á ísbaðinu stóð en unaðsleg tilfinning eftir á... manni líður eins og maður geti verið endalaust nakinn útí -10° frostinu, sem virkar einhvernveginn miklu hlýrra en vatnið, undarleg tilfinning en mögnuð og svo sannarlega eitthvað sem allir verða að prófa!
Á fimmtudaginn gerði ég soldið skemmtilegt. Hélt kynningu um Ísland fyrir tvo sænskumælandi fimmtu bekki hér í Turku. Þetta var mjög gaman og voru krakkarnir einstaklega áhugasamir um þetta merkilega land lengst útí buska. Spurðu meðal annars hvort ég væri ekki alltaf hrædd (ég meina, eldgos og jarðskjálftar daglegt brauð) og hvort það væri ekki gegt skrítið að búa svona langt í burtu frá öllu. Ég gaf þeim íslenskt nammi - söl - að smakka. Sum áttu ekki til orð yfir hinum vitlausu Íslendingum sem borða hana eins og sælgæti, öðrum fannst hún nú aðeins betri, en flest týmdu ekki að borða hana og límdu bitann sinn inn í vinnubókina sína. Þegar ég hafði lokið máli mínu vissi ég ekki fyrr en börnin tóku að flykkjast að mér og biðja um eiginhandaráritun, meðan á skriftunum stóð heyrði ég útundan mér "vá, hún notaði minn penna þrisvar". Í lokin komu svo tvær stelpur og sögðust verða að knúsa mig áður en ég færi ...húff, mér leið virkilega eins og celebrity...
Byrjaði í tveimur afar áhugaverðum kynjafræðikúrsum í vikunni. Báðir fara þeir verulega hratt af stað með fullt af ritgerðum og heimaverkefnum svo ég þarf að hafa mig alla við... massasjokk fyrir mig sem hef bara verið í sænskukúrs það sem af er árinu. Næsta vika heilsar svo með enn fleiri nýjum kúrsum. Þetta er soldið skrítið, ég sem hef lengi talið mig illa haldna af námsleiða hef orðið vör við að undanfarnar vikur hef ég fremur þjáðst af hinu gagnstæða... sem mætti kannski kalla ónámsleiða... eða of-litiðáð-gera-í-skólanum leiða... sem lýsir sér þannig að mann virkilega þyrstir í gáfulegar akademískar bókmenntir að lesa eða langar ógeðslega mikið að skrifa ritgerð... man ekki eftir að hafa fundið fyrir þessari tilfinningu áður en þetta er skemmtileg og öðruvísi tilfinning sem ég held að sé holl öllum þeim sem þekkja hugtakið námsleiða af eigin raun.