Þá er ég búin að klæða síðuna mína í vorfötin, því það er komið svo ansi mikið vor. Vori skal fagnað, eins og áður var tekið fram, í Eistlandi, Lettlandi, Litháen og Svíþjóð í félagskap Gógóar, Freydísar og Þórhildar... jibbííí!
Páskafríið fór fyrir lítið hvað lærdóm varðar en það er ekki þar með sagt að ekkert hafi til tíðinda borið... enda lærdómur almennt kannski vart í frásögur færandi. Mesta dramað var í tengslum við páskahefðir Maríu meðleigjanda Þórhildar. Strangtrúuð og fastheldin í hefðir, eitthvað sem við trúleysingjarnir eigum ekki að venjast. Þar sem dramað var hálfgerður loftbelgur og ekki þess virði að eyða í það orðum læt ég frekari útskýringar liggja á milli hluta. En fyrir tilstilli Maríu málaði ég í fyrsta skipti egg og smakkaði mjög vonda pólska páskaköku.
Átti ansi gott djamm á föstudagskvöldið með Guðrúnu og Ingibjörgu sem dvöldu hér í páskafríinu. Dönsuðum á Dynamo sem aldrei fyrr við tónlist í boði dj límstráks og múmínselflóðhests. Límstrákurinn fékk þetta viðurnefni því hann var með uhu lím í hárinu sem fyrir vikið var einn flókabendill niður eftir öxlunum. Hann tjáði okkur hversu mikill vítahringur þetta væri þar sem hann þyrfti reglulega að setja lím í rótina til að halda hárinu eins alls staðar, af tvennu illu fannst honum það skárra en að raka það af... honum fannst þetta límvesen nebbla ekki einu sinni flott. Múmínselflóðhesturinn var kallaður svo þvi við vorum ekki á einu máli um á hvað hann minnti okkur... þessi blanda lýsir svona nokkurnveginn sameiginlegu mati okkar á útliti hans. Þessir furðufuglar enduðu sumsé í sama partíi og við ásamt fleira furðuliði og skemmtum við okkur konunglega, ekki síst við að virða allt þetta furðulega fólk fyrir okkur.
Laugardagur var letidagur en á sunnudaginn, sjálfan páskadag, vorum við Þórhildur duglegustu húsmæður í heimi, matreiddum lambalæri að íslenskum sið, með kartöflum, gulrótum, sveppasósu og (næstum ora) grænum baunum. Í eftirmat var ávaxtasalat Þórhildar auk páskaeggja í boði hennar og ekki má gleyma páskaöinu sem hún fékk sent frá Íslandi. Við buðum Guðrúnu og Ingibjörgu að sjálfsögðu í þennan ansi íslenska páskamat að ógleymdum honum Tobiasi. Ég held að gestirnir hafi farið saddir og sáttir úr húsi, allavega man ég ekki eftir að hafa borðað jafngóðan mat hérna... a.m.k. hef ég aldrei eldað jafgóðan mat... namminamm!
Segi þetta gott að þessu sinni. Næsta blogg kemur ekki fyrr en eftir tvær vikur því ég er að fara á reil... jibbískibbí!!!