Katrín í Namibíu
 
 
5.4.04
Nú er ég í gati því það var bara í plati að echinodermati væri tekinn fyrir í tíma í dag... svona skáldlega byrjaði ég færsluna mína klukkan tvö í dag sem hvarf eftir nokkra tugi lína á óútskýranlegan hátt. Nú ætla ég að gera aðra tilraun... kannski hún verði ekki eins skemmtileg og sú fyrri (sem var sko geðveikt skemmtileg) en ég ætla að reyna. Málið var nefnilega að ég fór fýluferð í skólann í dag. Var vel búin undir fyrirlestur um echinodermata en svo fór kennarinn að babla um fiska... ég varð steinhissa og spurði hvernig á þessu stæði, þá var málið að kennsluáætluninni hafði verið breytt án þess að við nemendur værum látin vita, og þar sem ég tek bara hryggleysingjahluta kúrsins fékk ég náðarsamlegast að yfirgefa samkomuna... svo ég græddi eyðu, sem ég nýtti í át með Irene og blogg sem var tilgangslaust því það hvarf.

Annars átti ég ansi annasama helgi, lítið fór þó fyrir lærdómi líkt og fyrridaginn. Á föstudagskvöldið voru tvö ammæli, Michala meðleigjandi hélt uppá sitt hér heima, fremur rólegt og yfirgaf ég veisluna fyrir heldur meira fjör í samkomusalnum okkar þar sem hún Marie hélt uppá 25 ára ammælið sitt. Þar var sánapartí sem var voða skemmtilegt þar sem ég hef ekki stundað slíkt í langan tíma. Ég dvaldi löngum stundum í sánunni sem og utan hennar, striplaðist fram og til baka, á endanum var mér farið að finnast ég aðeins fáklæddari en aðrir partígestir, fólk meira að segja farið að hafa orð á því, svo ég sá nú sóma minn í því að klæða mig. Var komin heim á skikkanlegum tíma miðað við að ég þurfti að vakna fyrir allar aldir morguninn eftir... maraþonkóræfing framundan. Eftir maraþonkóræfinguna á laugardeginum (dansæfingu öllu heldur þar sem við erum að setja upp verk þar sem líkamstjáning spilar stóran þátt), markaðsrölt og kaffihús fórum við Tiina og Laura á leikritið Elling sem sýnt er í sænska leikhúsinu hér í borg. Eftir það hitti ég Elísu á Blanko og héldum við saman í kveðjupartí hjá honum Fiack. Skemmtum okkur vel þar, hitti fullt af fólki sem ég hef aldrei séð áður, meðal annars tvífara Bjarkar (hana Susönnu ljósmyndara) og fleira skemmtilegt fólk. Daginn eftir var maraþonkóræfing á ný, ljósmyndun og upptaka í þetta skiptið. Skrapp svo til Olafs og klippti hann... hann sprakk úr hlátri þegar hann leit í spegil, en sagðist svo bara nokkuð sáttur, er ekki enn farinn að láta laga það svo ég held hann skammist sín ekkert svo mikið fyrir hausinn sinn. Olaf bauð mér í mat, voða góðan fisk, og eftir matinn fór ég í kaffi til hennar Jessicu sem er með mér í kór. Hjólaði svo heim í vorblíðunni.

Það er sko komið yndislega mikið vor hérna! Hlýtt og bjart langt frameftir, svo sannarlega kærkomið eftir strangan vetur. Hef hugsað mér að fagna vori með reisu sem hefst í næstu viku. Gógó og Freydís koma á miðvikudaginn í næstu viku (jibbííí!) og á föstudaginn er stefnan sett á reil um Eystrasaltslöndin. Við Þórhildur munum svo yfirgefa stelpurnar og halda til Stokkhólms þar sem Floran mín (kórinn minn) ætlar að halda tónleika (laugardaginn 24. apríl, kl. 17 á Nybrokajen 11, allir velkomnir!!!). Um páskana verður trúlega eitthvað skemmtilegt um að vera líka, Guðrún og Ingibjörg koma á morgun svo það má svo sannarlega vænta fjörs næstu daga... segi ykkur fréttir af því síðar!

Hafið það gott í fríinu ykkar og GLEÐILEGA PÁSKA!



Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel