AUGLÝSING! Mig bráðvantar húsnæði í Reykjavík frá og með júnílokum... ef þið vitið um eitthvað eeendilega látið mig vita hið snarasta! Geri litlar kröfur, þak yfir höfuðið ætti að duga...
Held ég segi ekki meira í þetta skiptið, ritgerðir bíða þess að vera skrifaðar og bækur bíða þess að vera lesnar... ætla að setjast út í blíðuna með tölvuna mína, hef komist að því að það er alveg leiðin til að koma heilasellunum af stað.
P.s. sem Íslendingi finnst mér merkilegt að hjóla heim klukkan tvö um nótt í byrjun maí á stuttermabol og vera bara hlýtt... sérstaklega í ljósi þess að fyrir nokkrum vikum síðan hjólaði ég sömu leið ísilagða í vetrarúlpu að krókna úr kulda... Finnland er merkilegt land...