Jag ska skriva en uppsats på svenska om en bok som jag har läst, den ska vara färdig före slutet av månaden men jag har inte ännu hittat någon bra bok... har ni några förslag? Så ska jag också göra en uppsats om evertebrater och till sist så måste jag säkert tenta tenten från igår igen... den gick inte så bra:( Men iallafall, när jag har gjort det så är jag färdig med terminen och kan komma tillbaka till Island, men inte tidigare, och det blir säkert i slutet av juni. Nu vet ni det.
Þrátt fyrir slæmt gengi í prófi og annir framundan er ég samt voða glöð þessa dagana. Á von á heimsókn á mánudaginn, mamma og Elín ætla að kíkja og dvelja fram á sunnudag, það verður svooo gaman að sjá þær. Stefni á að gerast loksins túristi hérna og fara í smá túristaleik með mæðgurnar. Kíkja á staði sem ég hef aldrei séð og svona. Merkilegt hvað maður gerir lítið af svoleiðis hlutum ef maður dvelur lengi á sama staðnum. Hef t.d. séð mun fleiri túristahluti í Rússlandi en í Finnlandi. Auk þess hef ég séð ótrúlega lítið af Íslandinu mínu þrátt fyrir að hafa búið þar meirihluta lífs míns... sorglegt en satt. Ég hef svo sannarlega hugsað mér að gera eitthvað í því þegar ég kem á klakann á ný.
Í lokin kemur smá saga af stelpu sem ég kannast við sem heitir Katrín. Hún var ásamt nokkrum stelpum að ákveða tíma til að hittast og gera hópverkefni. Sagðist því miður hafa gleymt dagbókinni sinni heima en sagði tímann sem ákveðinn var örugglega henta vel. Daginn eftir fara þær í tölvuverið í skólanum til að vinna að verkefninu. Uppi á tölvunni sem þær eru í er dagbók og tekur ein stelpan dagbókina upp og segir
"hver á eiginlga þessa dagbók, hún er örugglega búin að vera hérna í meira en mánuð". Katrínu verður litið á bókina, flettir í gegnum hana og... hmmm... finnst dagbókarfærslurnar eitthvað kunnuglegar. Laumar bókinni svo nett í töskuna sína... nokkrum dögum fyrr hafði Freddy komið til hennar með verkefni sem hann fann í tölvuverinu merkt Katrínu Magnúsdóttur... jah, ég skal ekki segja en það er eins og sumt fólk sé stundum soldið annars huga...
P.s. ég ætla nú ekkert að vera að monta mig en ef þið komist yfir 2. tbl. tímarits Norræna félagsins í Finnlandi þá ættuð þið að kannast við allavega eitt andlit sem birtist þar á nokkrum stöðum... auk þess sem þar er að finna lítið viðtal við undirritaða, reyndar á finnsku en hva...