Katrín í Namibíu
 
 
31.5.04
Átti sæluviku hér í Turku með mömmu elsku og Elínu elsku. Þvældi þeim út hjólandi um allar trissur og sýndi þeim staði sem hafa verið hluti af mínu daglega lífi undanfarna níu mánuði, það var gaman. Fórum auk þess í hjólatúr um Álandseyjar, mæli eindreigið með því. Tobias litli átti afmæli meðan á dvöl þeirra mæðgna stóð og tóku þær bara þátt í þessari ansi fínu grillveislu sem hann hélt. Við Þórhildur bökuðum bestu súkkulaðiköku í heimi og bjuggum til forláta minningabók handa honum og Þórhildur sannaði ennfrekar listræna hæfileika sína þegar hún föndraði handa honum klippimynd af okkur þremur. Svo var Guðni líka með kveðjupartí í vikunni ásamt fleirum... já, nú eru bara allir að fara héðan... muuu...

En nú þýðir ekki sitja bara og blogga, á fyrir höndum að tæma íbúðina mína, þrífa hátt og lágt og flytja yfir til hans Tobiasar. Pakka svo niður í bakpokann minn því á morgun verður haldið í reisu á hjara veraldar, áfangastaðurinn er Nordkapp, nyrsti oddi Noregs (fyrir utan Svalbarða að sjálfsögðu). Við vitum ekki alveg hvað við verðum lengi en 10 daga ferð er ekki fjarri lagi.

Svo fer ég nú bráðum að koma heim...

Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel