Það lítur út fyrir að ég verði ekki húsnæðislaus í sumar, þökk sé henni Ástu minni, húsnæðismiðlara hjá Húsnæðismiðlun hf. (Takk!) Auk þess er ég komin með vinnu. Þannig að sumarspá mín um flöskusöfnun í Reykjavík, búandi á götum borgarinnar virðist ekki ætla að rætast. Gott mál.
Góða veðrið sem ég sagði ykkur frá síðast fór í pásu í gær. Í staðinn kom stórt rigningarský sem lá yfir borginni með tilheyrandi úrhelli (aldrei lent í öðru eins... droparnir voru örugglega 10 cm3), hagléli (af svipaðri stærð), ljósasjói og trommukonsert í boði þrumuguðsins Þórs. Var svo heppin að sleppa inn áður en rosalegheitin byrjuðu. Það góða við svona veður er að það togar ekki eins í mann að fara út þegar maður á að vera inni að læra.
Annars er einbeitingaskortur alltof algengur kvilli þegar það er mikið að gera í skólanum. Á föstudaginn þarf ég skila ritgerð, halda fyrirlestur og fara í próf auk þess sem alla daga fram að því eru massífar kóræfingar fyrir júbíleumstónleikana okkar á laugardaginn... og ég dunda mér við að blogga og klæða bloggið mitt í ný föt... argh... getur einhver sagt mér hvar hægt er að fjárfesta í einbeitingu og sjálfsaga?