Katrín í Namibíu
 
 
18.5.04
Síðustu dagar:

Fimmtudagur: Hélt fyrirlestur í taugalífeðlisfræði (gekk vel), hélt fyrirlestur í hryggleysingjafræði á skrifstofunni hjá honum Fagerholm elsku yfir kaffibolla og kökum (gekk vel), kóræfing og hmmm... kórpróf (gekk illa)

Föstudagur: Próf í sögu líffræðinnar (gekk vel), búðaráp í leit að einhverju til að fara í á júbíleumdjammið hjá kórnum daginn eftir (gekk illa), réðst á saumavélina hennar Camillu til að laga kjól sem ég ætlaði að fara í á júbíleumdjammið (gekk illa) kannski sem betur fer því ég fékk að ráðast á fataskápinn hennar í staðinn en þar kennir ýmissa grasa (gekk vel), borðaði hamborgara og drakk bjór með Guðna um kvöldið.

Laugardagur: Kóræfing (gekk vel), önnur búðarápstilraun, fylgihlutakaup í þetta skiptið (gekk vel), fór til Guðna til að hafa mig til fyrir tónleikana (gekk vel), fór á jubileumstónleikana og söng (gekk vel), fór á verulega virðulegan kvöldverð með kórnum og fleira virðulegu fólki á eftir (voða gaman) og síðan í partí (enn meira gaman) þar sem ég var frekar lengi, lenti á spjalli við Mats Liljeros tónskáld sem er góðvinur Sverris Guðjónssonar, Bryndísar Höllu Gylfadóttur, Áskels Mássonar og fleiri þjóðþekktra Íslendinga, Kaitso sem er skrítinn kall með langt skegg og Fredrik Sandström sem... er bara voða venjulegur strákur... og sátum við og spjölluðum þar til sólin var farin að skína og kominn þessi líka fallegi:

Sunnudagur: Boðið var upp á dýrindis morgunverð í sama húsi og partíið var (eða sillis eins og Finnar kalla þetta sem er stytting á sillfrukost sem þýðir síldarmorgunverður, en það er hefð hér meðal Finnlandssvíanna að borða saman morgunmat eftir svona stór og flott djömm) ég var nú frekar þreytt en þetta var gaman. Fór heim að sofa klukkan að verða 15 og svaf til kl. 6 morguninn eftir = 15 klst (fyrir tvær nætur náttla).

Mánudagur: Sumsé vöknuð klukkan sex, hófst handa við ritgerðarskrif sem ég náði að klára fyrir hádegi. Svo tók við lestur í taugalífeðlisfræði, sem, ykkur að segja, er svooo skemmtileg.

Þriðjudagur: Sit hér og blogga, taugalífeðlisfræðin bíður handan við þennan punkt.
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel