Síðasti dagurinn í Turku runninn upp, sorglegt en satt! Í kvöld mun ég taka flug til Köben og annað kvöld mun ég fljúga heim á Frón. Þrátt fyrir að ég kveðji líf mitt hér með söknuði verður nú líka ofsa gott að koma heim.
Annars heppnaðist ferðin á hjara veraldar mjög vel, hörkutólin sem ætluðu í tjaldútilegu norður fyrir heimskautsbaug urðu að láta í minni pokann fyrir veðurguðunum, frostnætur er ekki það sem er efst á óskalistanum í tjaldútilegum... gistum fyrstu tvær næturnar í tjaldi en svo voru það hin ýmsu kot sem fengu að njóta nærveru okkar. En það var líka ósköp notalegt.
Jæja, verð að halda áfram að setja í töskur. Hlakka til að sjá ykkur heima á klaka, þið eruð velkomin í heimsókn til mín í Skaftahlíð 18, þar sem ég mun búa í sumar, tek á móti gestum eftir kl. 17, 17. júní...