Katrín í Namibíu
 
 
1.7.04
Jæja elskurnar, það eru orð að sönnu að þessi síðasti dagur minn í Turku ætlar að verða ansi langur... ætli ástæðan sé ekki bara sú að ég reyni að halda sem lengst í líf mitt þar, hluti af mér er þar enn þegar ég er þar samkvæmt blogginu mínu, eller hur? Annars fer Post-Finland-Syndromið batnandi með hverjum deginum sem líður...

Byrjaði að vinna morguninn eftir að ég lenti. Það var svo skrítið að þegar ég mætti í gömlu vinnuna mína fannst mér ég bara aldrei hafa verið úti. Fyrir utan vinnu hafa dagarnir að mestu farið í samveru með vinum og ættingjum hér á landi, tjútt í miðbæ Reykjavíkur, sundferðir og göngu- og hjólatúra um borgina. Já, hjólatúra, krækti mér nefnilega í, hjólabakteríuna í Finnlandi og tók hana með til Íslands. Vona að fákurinn (sem enn hefur ekki fengið nafn þótt gamall sé, tillögur berist undirritaðri gjarna) komi til með að verða meira notaður en elskulega Hondan mín sem er orðin gömul og heldur betur farin að muna sinn fífil fegurri. Fyrir utan peningalegan sparnað því fylgjandi er hreyfingin og útiveran sem fylgir hjólreiðunum ótvíræður kostur. Svo héðan í frá verður hjólað um götur borgarinnar (hehe, þið megið alveg minna mig á þetta...).

Hef auk þess komið mér vel fyrir í lítilli íbúð í Skaftahlíðinni, nánar tiltekið númer 18 þar sem ég mun dvelja í sumar. Þið eruð velkomin í heimsókn hvenær sem er (takið mig endilega á orðinu)!

Held ég segi þetta gott í bili, þarf að halda áfram að sinna skyldum næturvaktarinnar... geeeisp...
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel