Undur og stórmerki hafa átt sér stað. Veskið er komið í leitirnar! Heiðarlegur finnandi hafði samband við mig eftir töluverða leit að símanúmeri mínu. Ég hoppaði hæð mína og brosti hringinn og hugsaði að kannski væri hrakfallasögusíðan ekkert svo góð hugmynd eftir alltsaman, ég væri nú stundum heppin líka. Sjáum hvað setur. Veskið var í sama ásigkomulagi og þegar ég skildi við það, eða þegar það skildi við mig öllu heldur. Benjamín á sínum stað auk Marimekkobuddunnar góðu og því sem þeim tilheyrðu. Mikið var nú gott að fá hann Benjamín í hendurnar á ný. Hann var nú orðinn soldið örvæntingarfullur greyið, en ekki var annað að sjá en að hann hafi fengið prýðismeðferð hjá finnandanum. Nú þarf ég ekki að hafa áhyggjur af korta- eða lyklamálum, á meira að segja aftur tvo hjólalykla svo hinn má alveg brotna fyrir mér.
Langaði bara að deila þessum skemmtilegu fréttum með ykkur. Þið þurfið enn að bíða eftir hrakfallasögu þar sem ekkert hrakfallalegt hefur gerst síðan síðast, en ég bíð spennt eftir að vita hvað það verður.