Finnlandsferðasaga...
Komin frá Finnlandi. Það var mjög gaman í Finnlandi. Finnland er nebbla svo skemmtilegt. Það lítur allt alveg eins út í Turku núna eins og þegar ég fór heim í vor nema að nú er haust. Svo vantaði líka slatta af fólki. En það var samt fullt af fólki þarna ennþá og flestir urðu mjög hissa að sjá mig. T.d. Sigurður leikari, sem ég fór með á átta tíma pöbbarölt á mánudagskvöldið, ægilega gaman; Berenike, sem er farin að kenna Finnum þýsku; Freddy og Klara sem voru að trúlofa sig héldu trúlofunarveislu og gáfum við Berenike þeim kökukefli í trúlofunargjöf sem við skrifuðum á F + K; Hanna-Maija sem er á kafi í ritgerðarskrifum en gaf sér samt tíma til að hitta mig á stúdentarestaurantinu í Arken nokkrum sinnum, svo átti hún líka afmæli meðan ég var þarna (Grattis!); Mia sem ég hélt að myndi missa andlitið þegar hún sá mig og Charlotte og Janina vinkonur hennar; Aino sem ég hitti á Bremer eitt kvöldið, töluðum um heima og geima, skrifuðum kort til Íslands o.fl; Tiina og Rikke sem langar að koma til Íslands; Karoline sem vildi fá mig aftur í kórinn ...og að sjálfsögðu hún Irene! Dvaldi í vellystingum praktulega í íbúðinni hennar alla vikuna, það var æði gæði að eiga samastað svona miðsvæðis í borginni! Takk aftur! H & M fékk engan frið fyrir mér og ekki UFF heldur... já, ég verslaði semsagt slatta og átti í smá erfiðleikum með að bera allt heim...
Ég gleymi náttla alveg að minnast á upphaflegan tilgang ferðarinnar, ráðstefnan, sem allt snérist að sjálfsögðu um, var verulega áhugaverð. Að ekki sé minnst á djammið sem henni fylgdi, þetta er afar skemmtilegur félagsskapur með afar skemmtilegu fólki. Með þeim gerði ég það finnskasta sem ég hef gert hingað til, sána á sjálfri Múmíneyjunni! Stakk mér í kaldan sjóinn eftir brennheita sáununa og hlustaði á hlátur Míu litlu, Múmínsnáðans, Snorkstelpunnar og félaga í fjarska. Finnskara gerist það varla! Svo hitti ég hann Eivind þarna, fyrrverandi leikskólabróðir minn frá Noregi... já, heimurinn er lítill...
En jæja, nú er ég búin að spjalla heilmikið um fólk sem þið þekkið ekki baun og ég efast um að þið hafið nennt að lesa svona langt...
Í næstu færslu fáiði svo að heyra fleiri ferðasögur, þá verða það sögur frá Grikklandi en ekki Finnlandi...
Lifið heil.