Þá er bloggsumarfríið mitt búið. Var sko í bloggsumarfríi í ágúst og þess vegna skrifaði ég ekki neitt. En nú er ágúst búin og ég hef enga afsökun svo það er eins gott að koma einhverju á blað. Í bloggsumarfríinu mínu gerði ég ýmislegt, ég fór til dæmis á Vestfirðina. Það var rosa gaman, heimsótti hana Judith (sem á heima í sætasta húsi í heimi) fór í flugferð og siglingu og skoðaði alla litlu bæina þarna fyrir vestan. Þetta er engu líkt, há, snarbrött fjöll og djúpir firðir á alla kanta. Hrikalegt á köflum. Svo byrjaði ég líka í skólanum í fríinu mínu. Nú er það kennslufræðin sem ég ætla að glíma við, skreyti hana reyndar með smá líffræði, en það er bara gaman.
En ætli ég verði ekki að fara að pakka... Finnland bíður, er á leið þangað á morgun og verð í rúma viku. Ástæða ferðarinnar er fundur sem ég þarf að fara á sökum míns nýja embættis, en í síðustu viku gerðist ég formaður ungmennadeildar norræna félagsins. Þannig að... Finland here I come! Jibbííí!!!