Kynlíf...
Þar sem ég hef ekki frá neinu merkilegu að segja verður þessi færsla mjög stutt, langaði bara svona að leiðrétta sögur um bloggfrí sem hafa verið á reiki sem og að sinna skyldu minni í skólanum sem bloggari. Um þessar mundir er svo sannarlega í nógu að snúast í skólanum, sem aðallega felst í því að kenna. Verkefni mitt fyrir næstu viku er hvorki meira né minna en að fræða unga fólkið um kynlíf, kynferðisþroska, kynhneigð, kynsjúkdóma, kynferðislega tjáningu, kynferðisafbrot, getnaðarvarnir og þar fram eftir götunum. Veit ekki hversu margt nýtt ég get kennt þeim, held að unglingarnir í dag séu nú meiri expertar í þessu en ég, því vandasamt verk framundan. Þetta er viðkvæmt efni sem þarfnast sérstakrar meðhöndlunar og á ég fullt í fangi með að finna leið til að gera kennsluna fjölbreytta og skemmtilega en jafnframt fræðandi. Mig langar því að biðja um smá aðstoð frá ykkur þarna úti. Hafið þið einhverjar snilldar hugmyndir handa mér, ungum og óreyndum kennaranema, sem gætu komið sér vel í kennslu þessara fræða?
...og eitt að lokum, hún Elín systir er byrjuð að blogga, þið sjáið tengil á hana hérna til hliðar, endilega kíkið ...og munið að kvitta fyrir ykkur!