Skólinn ...og smá Grikklandsferðasaga í lokin...
Nú er svo komið að blogg er orðið hluti af heimavinnu minni í skólanum... já, það er semsagt orðin skylda hjá mér að blogga, svo þið getið fylgst með því hvort ég vinni heimavinnuna mína hér á síðunni, a.m.k. að hluta til. Auk þess verða færslurnar að innihalda eitthvað varðandi námið svo ég held ég segi ykkur pínu lítið frá því sem ég er að fást við í skólanum. Sko... ég er semsagt í kennslufræði til kennsluréttinda í HÍ. Heimaskólinn minn er Borgarholtsskóli svo ég kem til með að vera með annan fótinn uppí sveit í vetur... þ.e. í Grafarvoginum (verð að viðurkenna að ég hafði varla komið í Grafarvoginn áður en ég kom í Borgarholtsskóla í fyrsta skiptið, gekk soldið brösulega að finna hann en það hafðist að lokum). Leiðsagnarkennarinn minn heitir Guðrún Ragnarsdóttir og kennir aðallega efnafræði, en líka smá heilbrigðisfræði og lífsleikni. Svo verkefni mitt í vetur er m.a. að aðstoða hana Guðrúnu við kennslu í þessum greinum. Það er soldið skrítið að vera komin hinumegin við kennaraborðið... eiga allt í einu að vera sá sem allt veit... þetta hefur reyndar farið mjög rólega af stað en í gær fékk ég mitt fyrsta alvöru verkefni... að fara yfir próf í heilbrigðisfræði! Er reyndar ekki komin langt með það en ég stefni á að nota helgina í það... sjáum hvað setur...
En já... ég lofaði ykkur líka smá sögum frá Grikklandi... þetta var hin besta vika í sól og HITA ...úff, ég hélt við værum að fara þarna á nokkuð svölum tíma, en því var ekki að heilsa, hátt í 30° hiti upp á hvern dag og þvílíkur raki! En þetta var samt yndislegt, letilíf á ströndinni í bland við skoðunarferðir (Knossos, Heraklion, Chania, Plakias, klaustur, virki o.fl.), fjallgöngur (Samaria gljúfrið, lengsta gljúfur í Evrópu 18 km og spannar 0 – 1250 m hæð) bæjarferðir, sæta barþjóna o.s.frv. Að ógleymdum upphaflegum tilgangi ferðarinnar... fimmtugsafmælið hans pabba! Til hamingju með það enn og aftur pabbi minn!
En það þýðir ekki að slá slöku við í lærdómnum, mín bíða 30 próf að fara yfir...