Ég skrifa aldrei hérna. Það er glatað. Það er skylda í skólanum að vera með bloggsíðu og skrifa reglulega en það er einmitt það sem ég er ekki að gera. Ég skrifa mjög óreglulega. Ég ætla samt aðeins að bæta úr því núna og skrifa nokkrar línur. En hvað á ég að skrifa... hmm... á meðan ég er að hugsa ætla ég að skella inn nokkrum auglýsingum:
Auglýsing nr. 1. Jólatónleikar Mótettukórsins. Endilega mætið og hlustið á tæra rödd drengjasóprans og seiðandi saxófón... ásamt okkur í kórnum að sjálfsögðu. Næstu tónleikar 1. og 3. des. kl. 20 og 4. des. kl. 17.
Auglýsing nr. 2. Jólaglögg Nordklúbbsins. Endilega mætið og drekkið glögg og borðið piparkökur að norrænum sið. Fimmtudaginn 2. des. kl. 20 að Óðinsgötu 7.
Auglýsing nr. 3. Kristín systir er byrjuð að blogga með Jóhönnu vinkonu sinni, þær eru súperdúllur, endilega smellið á linkinn hér til hliðar.
Ég er mjög lengi að hugsa svo ég læt þetta gott heita þar til bloggandinn kemur yfir mig... sjáumst á auglýstum uppákomum!