Katrín í Namibíu
 
 
markmið
14.12.04
Það er léttara en ég hélt að blogga daglega. Það er greinilega málið að setja sér markmið ef maður ætlar að koma einhverju í verk. Málið er nefnilega að ég er að deyja úr agaleysi. Bloggið er einfaldlega það eina sem ég kem í verk af því sem ég þarf að gera fyrir skólann. Þessa dagana er bara allt meira spennandi en að læra - hver kannast ekki við takatilsyndromið eða geraviðsyndromið á próftímabilinu? Ég held samt að ég sé búin að komast að leyndardómnum... að setja sér markmið er það sem þarf. Ekki það að ég hafi ekki vitað það soldið lengi, núna hef ég bara komist að því að eigin raun. Þannig að ég má eiginlega ekki vera að þessu lengur, þarf að fara að setja mér markmið og standa við þau!
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel