Fyrir nokkrum mánuðum (en örfáum færslum) síðan kom ég með þá hugmynd að breyta heitinu á síðunni minni í Hrakfallasögur eða eitthvað álíka... það hefur ekki gerst ennþá. Ég veit ekki alveg hvers vegna en kannski vegna þess að hrakfarir mínar hafa eitthvað látið á sér standa í töluverðan tíma... þangað til eina nóttina í vikunni... tatatatamm... mér tókst að stúta hvorki meira né minna en þremur ljósum á einni nóttu, geri aðrir betur! Fyrst var það aðventuljósið í glugganum við rúmið mitt sem fékk að fjúka, við einhverja byltuna heyrði ég skell, ljósið dottið í gólfið og hefur ekki virkað upp frá því! Seinna um nóttina fannst mér eitthvað ansi þungt loft svo ég ákvað að opna gluggann... rek mig í forláta lampa með glerskermi sem var í gluggakistunni með þeim afleiðingum að skermurinn brotnar... æ æ æ... það síðasta gerðist svo um morguninn þegar ég var að fara að kveikja á náttlampanum mínum, ég tók greinilega allhressilega í hann svo hann hentist á gólfið. Afleiðingarnar létu ekki á sér standa, allur skakkur og skældur og peran sprungin! Það verður að segjast eins og er að það var frekar dræm birta í íbúðinni næstu daga, notaðist aðallega við kertaljós, en það er kannski bara viðeigandi á þessum tíma árs?
P.s. tvær færslur á jafnmörgum dögum, held þetta sé persónulegt met!