Jæja... þetta gengur ekki lengur! Tíu færslur fyrir jól (þ.e. sept - des) er krafan í kúrsinum mínum... það skal takast! Enda engar svakalegar kröfur myndi ég segja. Þrátt fyrir að ekki verði um mjög reglulegt blogg svona undir það síðasta þá verða þetta allavega tíu færslur í heildina... þar af fimm í þessari viku... hehe...
Er búin í einu prófi af tveimur. Ég ætla að láta gengi mitt liggja á milli hluta... enda engin spurning eins leiðinleg og um gengi manns í prófi (þó maður viti að viðkomandi meini bara vel með henni - er heldur alls ekki saklaus af slíkum spurningum - þvert á móti - en mér finnst erfitt að svara þeim þar sem einkunnirnar mínar eru að jafnaði í ósamræmi við það sem ég tel eftir prófið).
En jæja, þetta verður bara mjög stutt færsla... er að fara að klára verkefnin mín í upplýsingatækni, þrátt fyrir að vera með smá hausverk eftir rauðvínið sem ég drakk í gær... drakk nú ekki mikið (mallaði þeim mun meiri svínasúpu með Freydísi... þeir skilja sem vilja...) en það er nú samt eitthvað að segja til sín. Svo mér er ekki til setunnar boðið, upplýsingatæknin bíður - og ég skal hundur heita ef ég næ ekki að skila 10 færslum fyrir jól... munið þetta með mér!