Hæ. Ég er að blogga. Ykkur sem hafið kíkt hingað annað slagið undanfarið hálfa ár bið ég afsökunar á bloggleysinu, en já, ég er víst bloggletingi. Ég hélt að bloggandinn væri rétt í þessu að koma yfir mig á ný en það er víst misskilningur. En af því að ég er nú byrjuð á þessu þá koma hér fréttir í skeytastíl. Ég er búin í skólanum. Ég er byrjuð að vinna sem tómstundafulltrúi hjá Nordjobb. Það er skemmtilegt. Þar næ ég að fullnægja þörfinni fyrir að tala skandinavísku (lesist finnlandssænsku) til hins ítrasta, eðalstarf fyrir mig. Auk þess fæ ég að skipuleggja ferðalög og skemmtanir í vinnunni. Það er eðal. Held að fréttirnar verði ekki fleiri að sinni. Ef ég verð dugleg þá er kannski minna en hálft ár í næsta blogg.