...já það er víst rétt, ég er á leið til Kenya. Ætlunin er að kenna þar líffræði í breskum heimavistarskóla, er rétt fyrir utan Nakuru, fjórðu stærstu borg í Kenya. Í tilefni af því hef ég ákveðið að taka upp þráðinn á þessari síðu á ný. Ég stend í þeirri trú að ég eigi ég auðveldara með að blogga þegar ég er langt í burtu. Sjáum hvort það reynist rétt.
Ferðin sjálf hefst þann 16. ágúst í Kaupmannahöfn, þaðan mun ég svo fljúga til London þann 31. ágúst og svo til Kenya þann 2. ágúst.
Kíkið endilega hérna við annað slagið ef ykkur langar í krassandi kennarasögur frá Katrínu í Kenya!
Hakuna matata!*
*Þetta er fleyg setning á Swahili, mest talaða tungumáli í Kenya. Er með kennslubók í málinu í láni og þar kemur fram að Swahili sé eitt léttasta tungumál í heimi. Aldrei að vita nema ég geti bjargað mér á Swahili undir lok dvalarinnar! Ég held að merking orðanna þarfnist ekki frekari útskýringar.