Katrín í Namibíu
 
 
Vei helgi!
11.9.05
Helgar eru dásamleg uppfinning. Það var yndislegt að vakna á laugardagsmorgun – snúa sér á hina hliðina og halda áfram að sofa. Kærkomin helgi í orðsins fyllstu. Fór í bæinn í gær með Karen (sambýliskonu, uhm, mér fannst meðleigjandi ekki rétta orðið þar sem við leigjum ekki íbúðina – anyways...), Artie (hagfræðikennara og krikketspilara) og Ed (leiklistarkennara sem er verulega áhugaverður karakter, er t.d. búinn að komast að því í hvaða tón niðursturtunarhljóðið í flestum klósettum er – það er E). Það var frábært að komast loks út fyrir víggirta veggi skólans, í fyrsta skiptið eftir að ég mætti á staðinn! Nakuru er trúlega ósköp venjuleg borg hér í Kenya en mér finnst hún stórmerkileg – konur í litskrúðugum fötum berandi vatsfötur á hausnum og barn á bakinu, karlar í gömlum leðurjökkum halla sér upp að húsvegg í djúpum samræðum, berfætt götubörn gangandi á eftir manni með útréttan lófan (og oft með lím í hinni hendinni, sorglegt en satt) og auk þess sölubásar með öllu mögulegu og ómögulegu hvert sem litið er. Fyrir Kenyabúum er hvít manneskja = peningar svo maður fær töluverða athygli sölumanna. Bæjarferðin varð reyndar hálf endasleppt hjá mér þar sem Victor, AIESEC-ari, hringdi í mig þegar við vorum u.þ.b. að komast á markaðinn og sagðist vera kominn í heimsókn. Þannig að ég hoppaði upp í næsta taxa og brunaði heim. Taxarnir eru líka soldið merkileg fyrirbæri hérna, hver sem er getur sagst vera taxabílstjóri þar sem þeir eru ekki auðkenndir á neinn hátt, og aksturslagið... uhm... mér stendur ekki alltaf á sama.

Þar sem bæjarferð mín tók fremur snöggan endi ákvað ég að gera aðra tilraun í dag, Victor og frændi hans komu að sækja mig og fóru með mig á einhverskonar danskeppni fyrir börn. Það var verulega skemmtileg upplifun – þvílík innlifun í dansinum! Held að vestrænar þjóðir mættu taka þetta til fyrirmyndar, börn allt niður í tveggja ára tóku þátt og dönsuðu af þvílíkri innlifun og taktfestu. Í lokin dönsuðu börnin við foreldra sína og mátti sjá að börnin höfðu ekki langt að sækja danshæfileikana, þetta virðist hluti af uppeldinu. Eftir danskeppnina var haldið í verslun – þennan líka fína súpermarkað þar sem hægt er að fá allt sem hugurinn girnist – og á afar sanngjörnu verði. Það vakti furðu mína að hálfur líter af gini var á sama verði og líter af ávaxtasafa – 150 kall!

Í kvöld var svo kvöldverður heima hjá okkur Karen, buðum Artie og Ed og Söru (íþróttakennara og fyrrverandi íbúa í herberginu mínu) og Alex (líka íþróttakennara) í tortillas sem Karen hafði komið með frá Englandi og beðið spennt eftir að elda. Kvöldinu lauk í notalegum samræðum yfir tebolla og íslenskri tónlist.

En jæja... það er kominn háttatími, betra að vera vel sofinn í eðlisfræðitímanum í fyrramálið - vektorar og vigrar... uhm...

P.s. váts – bloggaði síðast í gær!
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel