Veður, spítali, hlátursroka o.fl.
Ég hef ekki minnst orði á veðrið í síðustu færslum, það er nú næstum skylda að tala soldið um veðrið – verandi Íslendingur. Málið er nefnilega að veðrið er mjög sérstakt hérna og allt öðruvísi en ég átti von á. Sko... á morgnana þegar ég vakna er bara ágætiveður, yfirleitt mjög milt, logn og hálfskýjað. Þegar líða tekur á daginn hlýnar aðeins, held það fari samt aldrei yfir 25°C. Uppúr klukkan fjögur byrjar svo að rigna – og það ekkert smá regn, bókstaflega eins og helt úr fötu og yfirleitt stendur rigningin yfir fram á kvöld, ég veit ekki alveg hvað lengi því ég hef aldrei verið úti þegar það hættir að rigna en allavega töluvert lengi. Þegar það rignir verður bara frekar kalt – í gær kom meira að segja haglél og það engin smá skotárás, ekki þessi litlu högl sem við erum vön heima á Íslandi, nei, þetta voru klakaklumpar. Ég stóðst ekki freistinguna og fór út og tíndi nokkra klumpa, sá stærsti var örugglega hátt í einn rúmsentimeter. Fólkið hérna verður mjög hissa þegar ég tala um hvað það sé kalt hérna – en þú kemur frá ÍS-landi! – já, en ég er í Afríku! Í mínum heimi er steikjandi hiti í Afríku, ekki haglél!
Var einmitt að koma inn úr kvöldrigningunni – hálfskjálfandi ennþá þar sem ég var á stuttermabol og ekki með regnhlíf. Á leiðinni heim úr skólanum í dag hitti ég nefnilega hann Sam sérkennslukennara sem stendur fyrir heimsókn á barnaspítala og munaðarleysingjahæli á hverjum miðvikudegi. Nemendum og kennurum er frjálst að koma með og leggja sitt af mörkum til að hjálpa börnunum sem þar eru. Ég ákvað að skella mér með á spítlann. Litir og pappír voru með í för og var ætlunin að skreyta deildina með aðstoð barnanna sem þar lágu. Sam hafði varað mig við aðstæðunum á spítalanum áður en ég fór en samt sem áður varð ég fyrir svolitlu sjokki þegar inn kom. Í fyrsta lagi var húsakostur barnadeildarinnar ekki upp á marga fiska – steinhús á einni hæð, öll börnin lágu í sama rýminu og ár og aldir síðan veggir höfðu verið málaðir eða dyttað að húsakosti að örðu leyti. Ekki voru aðrar aðstæður betri, rúmin hefðu sómað sér vel í kvikmynd frá stríðsárunum og í flestum þeirra lágu tvö börn, svo að fram komin að þau héldu varla höfði. Þetta var vægast sagt sorglegt á að líta – erfitt að koma þarna inn og geta lítið sem ekkert gert til að hjálpa. Það sem við lögðum af mörkum í þetta sinn í var að skreyta deildina með myndum í öllum regnbogans litum, til stendur að skreyta hana enn meira auk þess sem ætlunin er að safna saman leikföngum og öðru sem glatt gæti þessar litlu sálir. Já, það er svo sannarlega þess virði að fara annað slagið út fyrir veggi skólans og sjá hvernig þar er um að litast, áhugavert að sjá með eigin augum hvernig aðstæðurnar raunverulega eru, þetta sem maður heyrir um og sér í sjónvarpinu en kemst aldrei í snertingu við – fá raunveruleikann beint í æð.
Eitt í viðbót áður en ég hverf á vit verkefnabókanna sem bíða eftir að vera yfirfarnar – virðulega kennslukonan Katrín (sem n.b. skipti fataskápnum út fyrir virðuleg kennslukonuföt áður en hún fór til Kenya) fékk hláturskast í kennslustund í dag. Þetta var frekar pínlegt – þeir sem hafa séð mig í þessum aðstæðum vita hvað ég er að fara – táraflóð og við hverja tilraun til að koma upp orði kemur óstöðvandi hlátursroka. Ekki beint það sem til er ætlast af virðulegri kennslukonu. Til að bjarga mér setti ég nemendunum fyrir verkefni og fór afsíðis á meðan versta hrinan stóð yfir. Veit ekki hvað aumingja nemendurnir hafa haldið, þeir hafa trúlega misst allt traust á íslensku kennslukonunni. Svona er nú það, fólk á við ýmsa veikleika að stríða – óstöðvandi hlátursköst eru kannski ekki þeir algengustu en hvað um það, vona bara að það gangi betur næst.
En jæja, það þýðir víst ekki að sitja bara og blogga – verkefnabækurnar bíða spenntar eftir að verða yfirfarnar (ég er ekki alveg eins spennt...)! Bless í bili!