Komin heim á ný eftir skemmtilega ferð um þjóðgarða og strandir Kenya. Ferðin var reyndar dýru verði keypt þar sem ég náði mér í bakteríuna
Salmonella typhi – sem veldur typhoid – svo nú ligg ég heima með hita, höfuðverk, beinverki, hálsbólgu og niðurgang. Ekki gaman að því.
Eftirfarandi frásögn er fyrri hlutinn af tveimur (eða fyrsti hlutinn af nokkrum, er ekki búin að skrifa meira) og tíundar það sem á daga mína dreif í tveggja vikna kennlsufríinu mínu. Var búin að skrifa hluta af þessu áður en ég fór svo sökum slappleika míns verður síðari hluti þessarar færslu frekar snubbóttur.
Föstudaginn sjöunda október (vá langt síðan) fór ég til Nairobi til að sækja hann Fredrik. Hann hafði lent í þeirri óskemmtilegu reynslu að það fannst sprengja á flugvellinum í Amsterdam, sem þýddi að öllum flugum þangað seinkaði, líka vélinni hans frá Gautaborg til Amsterdam. Þannig að þegar hann lenti loks á Shiphol var flugvélin hans til Nairobi farin, svo hann þurfti að sofa á flugvellinum og taka flug til Nairobi daginn eftir. Heldur óskemmtilegt þegar á því stóð en gaman að segja frá því seinna. Fredrik lenti því klukkan átta um kvöldið en ekki sex um morguninn sem þýddi að ég gat mætt á völlinn til að taka á móti honum. Lenti á leigubílstjóra sem vildi æstur bíða á flugvellinum og keyra okkur til baka líka – ég leyfði honum það en það þýddi að hann þurfti að bíða með mér í rúman klukkutíma á flugvellinum.
Eftir að hafa skilað farangrinum á hótelherbergið ákváðum við nú að gera eitthvað úr kvöldinu. Kenýski vinur minn hann Jowi og hollenski vinur minn hann Jaap voru í Nairobi þessa sömu helgi svo við ákváðum að hittast á skemmtistað niðrí bæ. Við vorum orðin ansi svöng þegar þangað kom og treystum við Jowi fyrir að panta fyrir okkur mat. Ég held ég hafi aldrei smakkað jafngóðan mat hér í Kenya. Fengum steiktan fisk – í orðsins fyllstu – heilan fisk á disk (haus, bein, roð, uggar) sem við borðuðum með höndunum eins og siður er hér í Kenya – nammigott – held ég reyni að borða mat með höndunum héðan í frá, hann smakkast einhvernveginn betur þannig. Eftir matinn skelltum við okkur á dansgólfið, þar sem Kenýskt live band spilaði, og dönsuðum fram á rauða nótt, meðal annars við lag sem vinir Jowi gerðu frægt og fjallar meðal annars um hann. Gaman að því. Við héldum heim uppúr hálfþrjú – ágætt að vera komin snemma heim því Jowi hafði boðið okkur í brúðkaup daginn eftir hjá fyrrverandi nemanda sínum. Okkur fannst nú frekar skrýtið að fara í brúðkaup hjá fólki sem við þekktum ekki en ákváðum að skella okkur – ekki á hverjum degi sem manni stendur til boða að fara í Kenýskt brúðkaup.
Við tókum því daginn snemma morguninn eftir – enda vakin klukkan átta af Quincy (AIESEC) sem hringdi til að spyrja um númerið á passanum mínum. Frekar furðulegt þar sem ég hafði látið hann fá tvö afrit af passanum mínum fyrr í vikunni. Anyways – fórum snemma í morgunmat. Varð frekar hissa þegar ég sá Ian kollega minn í morgunmat, það vildi svo til að hann hafði farið til Nairobi sömu helgi og gisti einmitt á sama hóteli, sniðug tilviljun. Við röltum svo með Ian niður í bæ þar sem við hittum Jowi, Jaap og Julie og drukkum dýrasta kaffibolla sem ég hef drukkið hérna (150 kall) áður en við héldum í brúðkaupið. Brúðkaupið fór fram í kirkju í Kibera, sem er eitt stærsta “slum” sunnan Sahara. Við héldum að við værum alltof sein þegar við komum á staðinn um hálftíma eftir tilsettan tíma en svo var ekki, athöfnin hafði ekki byrjað – Kenýsk stundvísi í hnotskurn. Eftir stutta stund byrjaði þó athöfnin með gospeltónlist. Allir tóku þátt, sungu, klöppuðu og dilluðu sér í takt við tónlistina, allt öðruvísi en það sem maður á að venjast í kirkju. Þetta var mjög skemmtilegt en þegar þetta hafði staðið í klukkutíma fórum við að velta því fyrir okkur hvort þetta væri virkilega brúðkaup. Eftir gospeltónlist í um einn og hálfan tíma kom svo loks presturinn. Nú héldum við að athöfnin væri að byrja fyrir alvöru. Ekki var það nú svo gott. Presturinn byrjaði á að kynna alla prestana sem voru viðstaddir – þeir voru að minnsta kosti tuttugu. Þá kynnti hann alla mikilvægustu gestina sem voru viðstaddir – okkur til mikillar furðu vorum við meðal þeirra og urðum við því að gjöra svo vel að standa upp og veifa til annara gesta þegar nöfnin okkar voru nefnd. Auk þess hafði okkur verið valið sæti fremst í kirkjunni, við hliðina á foreldrum brúðgumans. Frekar fyndið þar sem við höfðum aldrei séð fólkið sem var að gifta sig. Eftir kynninguna hélt presturinn tölu um mikilvægi þess að gifta sig, að konan yrði að vera manni sínum dyggur þjón og fylla upp í það tómarúm sem fyrir er í hjarta hans. Hlutverk eiginmannsins var ekki alveg eins skýrt en það mátti túlka það sem svo að hver kona ætti að vera þakklát ef einhver vildi giftast henni – jahérnahér, á tímabili langaði okkur Fredrik mest að fara út. Eftir ræðu prestsisns hófst svo athöfnin – en hún tók síður en svo fljótt af, enda ekki við því að búast. Fyrst fór fram innmars þar sem vinir brúðgumans dönsuðu inn á afar hægu tempói, þá tóku vinkonur brúðarinnar við á álíka hægu tempói. Að lokum komu svo brúðguminn og brúðurinn dansandi inn og þá var allt klárt. Sjálf giftingin tók ótrúlega fljótt af í samanburði við þá 5 tíma seremoniu sem fram fór á undan. Það sem okkur Fredrik þótti helst athyglisvert var að rétt fyrir athöfnina tilkynnti presturinn að hvort tveggja væri HIV neikvætt – og fagnaðarlæti brutust út. Við veltum því fyrir okkur hvort hann hefði líka tilkynnt ef þau hefðu ekki verið neikvæð. Þar sem við vorum orðin töluvert þreytt eftir 5 tíma setu létti okkur þegar Jowi sagði að við þyrftum því miður að fara núna þar sem han þurfti að ná rútu til Eldoret eftir stutta stund. Við héldum því út í sólina á ný, kvöddum Jowi, Jaap og Julie og hoppuðum upp í taxa sem brunaði með okkur á Karen Blixen safnið, þaðan gengum við svo á Karen Blixen veitingastað þar sem við fengum nammigóða pizzu sem kostaði heilar 500 krónur – dýrasti matur sem ég hef borðað hingað til!
Til að gera langa sögu stutta þá eyddum við seinni deginum okkar í Nairobi í The National Musem – mjög spennandi safn en þyrfti þó að gera það upp – nýjustu upplýsingar þar eru síðan 1970. Fórum í heimsókn í Sænska skólann í Nairobi sem var eins og að koma í annan heim – skólinn leit meira út eins og lúxus hótel, risa sundlaug og sólbaðsaðstaða fyrir utan, héldum fyrst að við hefðum villst. Enduðum svo á kínverskum veitingastað – nammi gott. Héldum svo til Nakuru um kvöldið, eftir að hafa beðið í 1 og hálfan tíma eftir að matatuinn okkar færi af stað – en hér fer engin bifreið af stað fyrr en kominn er farþegi í hvert sæti – kannski skiljanlegt að stundvísi sé ekki meiri en gengur og gerist hér í landi.
Segi þetta gott í bili – meira seinna þegar ég er orðin hressari!