Kakamega, matatu, mzungu...
Allir vegir í Kenya eru götóttir. Allir vegir í Kenya hafa eina akrein í hvora átt. Á öllum vegum í Kenya er hámarkshraði 80 km/klst. Á flestum vegum í Kenya er meðalhraði 120 km/klst. Helgin mín einkenndist af keyrslu á þjóðvegum Kenya til og frá Kakamega sem er eini regnskógurinn í Kenya. Ég hafði því nógan tíma til að stúdera vegakerfi og aktsurslag Kenyabúa.
Ferðalagið hófst á föstudagseftirmiðdag þegar ég fékk far til Eldoret hjá einkabílstjóra Alyu – nemanda við skólann sem býr í Eldoret. Ég átti von á að vera í sama bíl og Alya á leiðinni en nei, það komu sko tveir bílar að sækja hana og var ég því ein í bíl með einkabílstjóra fjölskyldunnar, ekki amalegt það. Ferðin gekk vel, mér þótti samt nóg um hraðann á köflum – 140 km/klst þegar fáar holur voru á veginum. Þegar til Eldoret kom byrjaði ég á að kíkja í háskólann á Victor, Phil og félaga, staldraði þó stutt við því ætlunin var að hitta Joke og félaga hennar og kíkja aðeins út á lífið. Ég hoppaði því upp í matatu og brunaði á skemmtistað í Eldoret þar sem ég hitti Joke og félaga. Þetta var n.b. í fyrsta skipti sem ég fór út á lífíð í Kenya og var bara mjög gaman, dönsuðum villtan dans við uppáhaldshljómsveit Jowi (kenýskur vinur Joke) sem spilaði einhverskonar reaggie/rumbu/salsa/jazz – erfitt að skilgreina en þetta var ágætistónlist. Ég læt umfjöllun um athyglina sem við fengum sem mzungu (hvít manneskja) á skemmtistaðnum liggja á milli hluta, en hún var þónokkur. Um nóttina gistum við hjá Jowi og fjölskyldu hans. Ég er alltaf að komast betur að því hvað heimurinn er lítill. Jowi var í námi í Noregi fyrir nokkrum árum síðan og bjó þá í sömu blokk og ég bjó í þegar ég var lítil og bjó í Noregi – merkilegt nokk.
Morguninn eftir tókum við daginn snemma, vöknuðum rúmlega sjö. Hentum í okkur morgunverð sem kona Jowi hafði verið svo elskuleg að finna til og tókum svo taxa niður í bæ. Þar hittum við Mirjam, Norman og Alex vini Joke og fyrirhugaða ferðafélaga okkar til Kakamega. Að komast á milli staða er ekki alltaf auðvelt verk hér í Kenya. Algengasti ferðamátinn er matatu (sjá fyrri færslu) og þarf maður í fyrsta lagi að leita uppi matatu sem er á réttri leið, í öðru lagi að prútta um verðið áður en maður sest uppí og í þriðja lagi að bíða þangað til búið er að fylla matatuinn, sem getur tekið allt að klukkutíma. Á meðan biðinni stendur eru sölumenn eins og mýflugur í kringum mann með allan mögulegan og ómögulegan varning. Aðallega samt rakhnífa, vasaklúta og hnetur. Það þýðir ekkert að loka glugganum á matatunum vilji maður losna við sölumennina, þeir bara opna aftur. Í þetta skiptið gekk vel að fylla matatuinn. Mér þóttu ferðafélagarnir þó óþarflega smámunasamir þegar kom að verðinu, eyddu töluverðum tíma í að prútta verðið niður um tíu shillinga, sem samsvarar 10 íslenskum krónum. Fengum ferðina á 170 shillinga – þokkalegt verð fyrir rúmlega tveggja klst keyrslu. Þegar til Kakamega kom skiptum við yfir í annan matatu sem ók okkur alla leið til regnskógarins sjálfs. Þeirri ferð mun ég seint gleyma. Utan á matatunum stóð skýrum stöfum að bíllinn tæki að hámarki 11 farþega. Þegar mest var voru 18 farþegar um borð. Mér þótti nóg um og ákvað að festa ósköpin á filmu – þá varð bílstjórinn æfur og sagði að það væri glæpur að taka mynd í matatu – mér var skapi næst að spyrja hvort það væri meiri glæpur að taka mynd en að hafa yfir helmingi fleiri farþega um borð en leyfilegt er.
Um fimm leytið komumst við loks í frumskóginn sjálfan eftir ansi langt ferðalag. Hentum farangrinum inn í herbergið sem við gistum í og fórum svo í göngutúr um frumskóginn, og þvílíkur skógur. Skógarbotninn alsettur þykkum gróðri, og apakettir hoppandi á milli himinhárra trjánna – og fjölbreytileikann í gróðrinum vantaði ekki. Römbuðum á húsaþyrpingu í miðjum skóginum. Fyrir utan húsin var fullt af kenýskum börnum að leik. Þau ráku upp stór augu þegar þau sáu okkur – mzungu ekki daglegt brauð – eftir það fengum við engan frið, við vorum elt útum allt. Yndisleg börn en afar sorglegt að sjá útgangin á þeim, skólaus með rifna ræflana hangandi utan á sér. Að lokum kvöddum við þau að kenýskum sið og það virkaði, börnin kvöddu á móti og héldu heim á leið. Göngutúrinn var ekki langur í þetta skiptið þar sem farið var að dimma, við héldum því til baka í gistihúsið, fundum til nestið okkar og borðuðum undir stjörnubjörtum afríkuhimninum í miðjum frumskóginum. Undir miðri máltíð sáum við hvar hjólataxi (venjulegt reiðhjól þar sem farþeginn situr á bögglaberanum, frekar algengt fyrir styttri vegalengdir) kom brunandi að okkur. Á bögglaberanum sat stelpa sem gaf sig á tal við okkur. Hún var ein á ferð, hafði komið alla leið frá Nakuru um daginn og ætlaði – líkt og við – að dvelja í skóginum yfir helgina. Við buðum henni að slást í för með okkur og gista í herberginu okkar. Í herberginu voru bara tvö rúm – en þröngt mega sáttir sofa – við Joke deildum öðru rúminu, Mirjam og Norman hinu og Alex og Anna (nýja stelpan) lágu á teppi á gólfinu. Við fórum snemma í háttinn þetta kvöld. Ætlunin var að vakna klukkan fjögur um nóttina og fara í göngutúr um frumskóginn með skógarverðinum.
Það gekk betur en ég hélt að vakna (mér fannst skrýtið að hugsa til þess að klukkan var eitt heima á íslandi þegar ég vaknaði). David, indæli skógarvörðurinn beið fyrir utan húsið og héldum við í fylgd hans út í svarta frumskógarnóttina. Um hálfsjö leytið vorum við komin á fyrsta áfangastað, annan hæsta topp frumskógarins, 1700 m yfir sjávarmáli. Við komum rétt mátulega til að fylgjast með sólarupprásinni – það var yndislegt fylgjast með sólinni gægjast yfir fjallstoppana í fjarska. Himinninn í Afríku er uppáhaldið mitt, hann er alltaf fallegur, hvort sem um er að ræða stjörnubjartan næturhiminn, sólarlag, sólarupprás eða himininn alsettan skrýtnum skýjamyndum með sólina beint fyrir ofan hvirfilinn. Á leiðinni niður af hæðinni komum við við í helli (áður gullnámu) sem var fullur af leðurblökum. Við gengum í fylgd Davids hellinn á enda, þegar þangað kom lýstum við í kringum okkur með vasaljósunum okkar með þeim afleiðingum að leðurblökurnar fóru af stað – og vá, þvílíkur sveimur af leðurblökum, ótrúlegt að sjá þær fljúga um – hálfóhugnarlegt satt að segja. Þegar niður af hæðinni kom fengum við að kynnast ranghölum skógarins betur, David þekkti skóginn eins og lófann á sér og vorum við því í góðum höndum. Hann fræddi okkur um flóru og faunu skógarins sem er einstök. Apar hoppandi á milli greina og fuglar og fiðrildi í öllum regnbogans litum flögrandi um – ótrúlega fallegt.
Eftir átta klukkutíma göngu – og rúma 16 km – var kominn tími til að halda heim. Heimferðin gekk mjög vel, á kenýskan mælikvarða. Var samferða Önnu alla leiðina til Nakuru þar sem hún er að vinna á munaðarleysingjahæli þar í borg. Við lögðum af stað klukkan tólf og ég var komin heim rúmum átta tímum síðar. Síðasta spölinn var ég ein í matatu – fékk óskipta athygli 16 kenýskra karlmanna sem deildu matatunum með mér, einn þeirra ákvað áður en ferðin var á enda að giftast mér – hann hafði nefnilega ákveðið fyrir löngu að giftast hvítri konu – ekki amalegt... eða hvað?
Næstu helgi og reyndar næstu tvær vikur bíða mín svo enn fleiri ævintýri – Fredrik kemur á föstudaginn og verður í tvær vikur. Stefnan er að fara í fimm daga safarí, sjá nokkur ljón, fíla og gíraffa og enda svo í afslappelsi á ströndinni í Mombasa. Hlakka miiikið til! Það verður því trúlega frá einhverju að segja í næstu færslu... en það gæti þó orðið soldið langt í hana.
Bless í bili!
P.s. Ef ykkur langar að taka Fredrik til fyrirmyndar hvet ég ykkur eindregið til þess, plássið í íbúðinni minni vantar ekki - auk þess sem Kenýa er vel þess virði!