Herdís í heimsókn, hjólatúr um hliðið til Helvítis o.fl.
Í dag er þjóðaratkvæðagreiðsla í Kenya um nýja stjórnarskrá landsins. Sú gamla hefur verið við lýði frá árinu 1963 þegar Kenýa öðlaðist sjálfstæði frá Bretum. Kibaki hafði það markmið þegar hann tók við forsetaembættinu að gera nýja stjórnarskrá og hefur nú orðið úr því. Kenýabúar flykkjast í tvær fylkingar – bananafylkinguna, ef þeir eru samþykkir ákvæðum hinnar nýju stjórnarskrár og appelsínufylkinguna, þeir sem eru á móti eða vilja endurskoða hina nýju tillögu. Forseti hefur boðað tveggja daga frí sökum þjóðaratkvæðagreiðslunnar og er því allt atvinnulíf í Kenya lamað. Það er því engin kennlsa í dag. Það er ágætt.
Þrátt fyrir að hafa átt langa helgi þorðum við Herdís ekki að nýta okkur aukafríið til ferðalaga. Höfðum verið varaðar við af innfæddum, það gæti verið hættulegt sökum óeirða sem brotist gætu út í tengslum við atkvæðagreiðsluna. Við ákváðum þó að nota helgina til ferðalaga og vera komnar heim fyrir atkvæðagreiðsluna sjálfa. Fórum í þjóðgarð sem heitir kallast Hliðið til Helvítis eða Hell’s gate og stendur við Naivasha vatn sem er ekki langt hér frá. Riitta og Sulo frá Finnlandi fóru með okkur og Catherine kenýsk kærasta Sulo og hún Joke líka. Við gistum í litlum kringlóttum kofum með stráþaki, svona ekta afrískum. Á sunnudeginum leigðum við okkur hjól og hjóluðum um Hell’s gate. Þetta er yndislegur þjóðgarður og er tvímælalaust í fyrsta sæti af þeim þjóðgörðum sem ég hef heimsótt hér – enn sem komið er að minnsta kosti. Stórkostlegt að horfa á villtu dýrin augliti til auglits, sebrahesta, buffalóa, gíraffa, antilópur, bavíana... Þarna eru líka hlébarðar, sítur (öðru nafni blettatígrar), hýenur og ljón! Reyndar segja flestar ferðahandbækur að þarna séu engin ljón að finna, en þjóðgarðsvörðurinn sagði okkur að sebrahestur hefði orðið ljóni að bráð nokkrum dögum áður en við komum. Veit hvort ég treysti betur munnlegum eða skriflegum heimildum, en við hjóluðum upp að sebrahræinu, ekki mjög frýnilegt og afar illa lyktandi. Nær komumst við ekki þessum stóru köttum, enginn þeirra varð á vegi okkar en við sáum fótsporin umhverfis hræið og á fleiri stöðum. Í Hell’s gate er gljúfur sem er hið eiginlega hlið til Helvítis. Gljúfrið er ansi þröngt á köflum og rennur á eftir því endilöngu svo það varð ekki hjá því komist að bleyta fæturna. Vatnið var þó hlýtt og notalegt þar sem jarðhiti er í Hell’s gate og heitar uppsprettur á víð og dreif um gljúfrið. Ekki hverir eins og við eigum að venjast heima á Íslandi heldur litlar heitar sprænur. Á leiðinni niður gljúfrið hittum við Maasaia að nafni Patrik sem vildi endilega gerast leiðsögumaður okkar. Við vorum nú ekki alveg til í það í byrjun, gaurinn virtist aðeins hafa fengið sér í aðra tánna og var afar þvoglumæltur, áttum frekar erfitt með að skilja hann. Að lokum féllumst við á það og sömdum um að gefa honum nokkra aura fyrir. Eftir að hafa leitt okkur um gljúfrið fór hann með okkur í Maasai þorpið sitt. Maasai þorp eru afar áhugaverð. 10 – 15 mykjukofar sem byggðir eru í hring og þykk girðing úr trjágreinum umhverfis til að verjast rándýrum sem eiga það til að koma nálægt híbýlunum. Maasaiar hafa haldið hvað fastast í hefðir sýnar og láta tækninýjungar sem vind um eyrun þjóta. Menntun er ekki hátt skrifuð þeirra á meðal heldur skiptir öllu að eiga margar kýr og geitur. Það er merki um háan status að eiga margar kýr. Þeir borða lítið af grænmeti og ávöxtum, aðalfæðan er kjöt og blóðblönduð mjólk – járnríkt sem kemur sér vel þar sem flestir Maasaiar lifa í mikilli hæð yfir sjávarmáli. Við semsagt kíktum í þorpið, fórum í heimsókn í mykjukofa, sáum eld kveiktan án eldspýtna, fengum dans- og söngasýningu og svo var okkur sýnt hvernig þeir drepa dýr með einhverskonar keilukasti – Herdís fékk meira að segja að prófa. Eftir skemmtilega heimsókn í Maasaiþorpið héldum við aftur í litlu kofana okkar. Um kvöldið fórum við svo aftur heim til Nakuru. Það gekk afar illa að fá matatu heim þar sem þeir voru hættir að ganga vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar daginn eftir. Að lokum tókst það þó en á uppsprengdu verði – á kenýskan mælikvarða, 200 kall fyrir rúmlega klukkutímaferð, það kallast nú venjulega ekki mjög mikið.
Þetta skrifaði ég sumsé á mánudaginn, en komst ekki lengra. Internetið hefur ekki vikrað í háa herrans tíð hérna í skólanum vegna veiru í kerfinu. Ekki gaman að því. En núna virkar það, vona að það virki þangað til þessi færsla er komin á netið!
Hell’s gate var ekki það eina sem á daga okkar Herdísar dreif í síðustu viku. Fyrstu helgina hennar Herdísar vorum við í Nairobi þar sem við gistum hjá Hokman sem er stelpa frá Hong Kong, fórum í kokteilboð á Hilton hótelinu, drukkum kaffi á Java (besta kaffihús í Nairobi), fórum í bókabúð (lífsnauðsynlegt, fyrsta skipti eftir að ég kom til Kenýa) semsagt, menningarferð til Nairobi en það er sem slíkt lífsnauðsynlegt annað slagið. Héldum á sunnudagskvöld til Nakuru.
Á mánudeginum fórum við í bæjarferð þar sem ég sýndi Herdísi Nakuru.
Á þriðjudeginum fórum við gönguferð um Menengai gosgíginn sem er hérna rétt hjá. Gengum niður í gíginn og upp aftur – töluvert erfiðara en ég átti von á, sérstaklega síðasti parturinn á leiðinni upp sem var nánast þverhnípi með syllum á víð og dreif sem maður klöngraðist á milli og hélt dauðahaldi í grasið til að detta ekki. Gígurinn er um 500 metra djúpur – svo það hefði ekki verið gaman að detta! Þegar við vorum komnar upp á ný fór að hellirigna svo við hlupum í skjól í tréútsýnisturni og borðuðum nestið okkar – uppiskroppa með vatn eftir alla gönguna. Gengum svo niður gígbarminn í átt að Nakuru á ný. Fengum óskipta athygli barna á leiðinni niður sem hlupu á eftir okkur og kölluðu How are you? eða Give me sweets! eða Mzungu! Mzungu! Sum þeirra dönsuðu meira að segja fyrir okkur, mjög gaman. Áttum nokkrar hnetur sem við gáfum þeim fyrir vikið, þau voru hæstánægð með það!
Á miðvikudeginum fórum við með skólanum mínum í heimsókn á munaðarleysingjahælið þar sem hún Riitta er að vinna. Aðstæður þar eru ágætar, börnin eiga í sig og á. En fyrir vestrænt auga er þetta ósköp vesældarlegt. Ósköp að vita af öllum þessum litlu greyjum sem eiga enga foreldra. En maður getur lítið gert annað en að veita þeim athygli þann tíma sem maður dvelur með þeim.
Á fimmtudeginum fórum við í þjóðgarðinn við Nakuruvatn. Í þetta skiptið var betra veður en þegar ég fór með Fredrik, sól og léttskýjað. Við sáum engin ljón, en hins vegar sáum við 15 hvíta nashyrninga. Það finnst mér mikið þar sem fjöldi þeirra var 30 árið 2003, trúlega ekki fjölgað mikið síðan þá – svo við sáum um helming hvítra nashyrninga í Austur – Afríku þar sem hvíta nashyrninga er eingöngu að finna í austurhluta álfunnar.
Á föstudaginn fórum við svo aftur í bæinn í Nakuru.
Allt þetta gerðist eftir hádegi þessa daga þar sem ég var að kenna fyrir hádegi. Herdís fékk meira að segja að kynnast kennslunni hérna líka. Setti hana í samband við Daphne og Domingo sem eru frönskukennarar hérna og fékk hún að kenna heilar fjórar kennlsustundir í frönsku – auk þess sem hún hjálpaði mér – ekki amalegt að fá aðstoðarmanneskju! Krakkarnir voru líka hæstánægðir með tilbreytinguna, eru enn að spyrja mig hvenær Tisa (auðveldara að muna en Dísa þar sem tisa þýðir 9 á swahili) komi aftur.
Núna er ég komin hring. Helgina á eftir fórum við í Hell’s gate sem ég sagði frá í byrjun. Á þriðjudaginn var kvaddi ég Herdísi þegar hún hélt til Malindi á köfunarnámskeið. Höfðum reyndar átt í viðskiptakarpi við Paul eiganda ferðaskrifstofu sem við skiptum við. Karpinu er ekki enn lokið, Paul setti upp tvöfalt verð fyrir köfunarnámskeiðið en rétt var og er umfram helmingurinn týndur að Pauls sögn, en það er önnur saga. Herdís er heil á húfi og nýtur þess að kafa í Malindi.
Jæja, ég er glöð að ég náði að ljúka þessari færslu. Nú tekur alvaran við – skýrslur um alla nemendurna mína – hvernig þeim gengur, jákvæðar (og neikvæðar) hliðar. Tileinka helginni skýrslugerð að þessu sinni, ekkert ferðalag. Það verður skrýtið!
Hafið það gott elskurnar mínar! Bless í bili!