Katrín í Namibíu
 
 
Jólin, jólin allsstaðar ...en samt frekar dræm í Kenýa
28.11.05
Ég veit ekki hvort þið vitið það en ég kem ekki heim um jólin. Ég mun dvelja með Jowi, kenýskum vini mínum og fjölskyldu hans í bæ sem heitir Kisumu og stendur við Viktoríuvatn. Jowi á tuttugu systkyni en hann mun samt bara halda upp á jólin með tíu þeirra þar sem pabbi hans átti tvær konur, tíu með hvorri. Pabbinn er dáinn en mamma Jowi og hennar börn munu halda upp á jólin saman og hin mamman með börnunum sínum tíu. Það verður nú samt örugglega alveg nógu þröngt á þingi þar sem flest þessara tíu systkina eru gift og komin með börn. Það verður svo sannarlega skrýtið að dvelja hér yfir jólin, held að það verði svipuð tilfinning og að sleppa jólunum alveg þar sem maður er svo ótrúlega vanafastur hvað jólin varðar. En trúlega lærir maður betur að meta það sem maður hefur heima eftir að hafa verið um jól á svona framandi stað. Það er frekar erfitt að skapa jólastemmningu hér í Kenýa. Hér er 25 – 30°C hiti á daginn og sól og allt í fullum blóma. Á götum úti eða í búðum eru engin merki um að jólin séu á næsta leyti, engar skreytingar eða jólaauglýsingar (sem ég verð yfirleitt mjög þreytt á heima á Íslandi – ótrúlegt hvað maður er vanafastur). Í búðum er hámark einn hillufermeter með jólaskrauti sem samanstendur eingöngu af glansandi borðum til að hengja upp og bera þess merki að hafa legið í kassa í áraraðir jólanna á milli. Það er því aðeins öðruvísi um að litast hér en heima. Á kvöldin þegar það er dimmt úti er samt aðeins auðveldara að skapa jólastemmningu. Þá getur maður kveikt á kertum og jólaseríum og allavega ímyndað sér að það sé snjór og kuldi úti.Við Karen gerðum okkar besta til að skapa jólastemmningu í íbúðinni okkar um helgina. Hlustuðum á jólalög og um kvöldið bakaði ég piparkökur (Karen gat því miður ekki verið með þar sem hún var á vakt á heimavistinni og var heimavistin full af mannætumaurum svo hún þurfti að setja sig í hlutverk meindýraeyðis til að reyna að losna við kvikindin, vona að þeir geri ekki innrás hjá okkur). Stefni á að tileinka einni kennslustund jólunum áður en ég hætti, gefa nemendunum mínum piparkökur, hlusta á jólalög, föndra og segja þeim frá íslenskum jólum.

Á laugardaginn eftir viku kemur Irene finnsk vinkona mín í heimsókn og verður í tæpar tvær vikur. Við stefnum á að fara niður á strönd á stað sem heitir Lamu, sem er víst paradís á jörð, og eyða síðustu dögunum fyrir jól þar – hlakka til!!! Á milli jóla og nýárs koma svo Lalli, Freydís og Jónas í heimsókn og verða í þrjár vikur – það verður nú aldeilis gaman!!!

Að lokum, bara ef einhver hefur verið að velta því fyrir sér, þá er heimilisfangið mitt í Kenýa:

Miss Magnusdottir
Greenstedsschool
Private Bag
Nakuru
Kenya
Africa

Einfalt og laggott!

...og símanúmerið, ef einhver skyldi hafa gleymt því:

+254 724 901 172

Vona að þið eigið yndislega aðventu heima á Íslandi, eða hvar í heiminum sem þið eruð! ...og þið sem eruð að fara í próf, gangi ykkur vel!!!
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel