Katrín í Namibíu
 
 
Síðasti hluti ferðasögunnar ...og örlítið meira
10.11.05
Jæja, hér kemur loks síðasti hluti ferðasögunnar – hann er stuttur þar sem það er löngu orðið tímabært að ljúka þessari ferðasögu. Hvert vorum við aftur komin... já, við lágum á ströndinni undir stjörnubjörtum himni í Mombasa. Man varla hvernig við eyddum næsta degi, minnir að við höfum ekki gert mikið þar sem við vorum svo úrvinda eftir allt ferðalagið. Lágum á ströndinni eða í litla strandhúsinu okkar og fórum svo aftur út að borða á sama stað og daginn áður – enda ekki um marga staði að velja. Daginn eftir komu Joke, Mirjam og Gosia og hittu okkur í Mombasa – síðasta dag Fredriks. Fredrik átti ekki að fljúga fyrr en um kvöldið svo við gátum nýtt daginn. Fórum á handverksvinnuverkstæði þar sem þúsundir kenýskra karlmanna sitja daglangt og skera allskyns fígúrur út úr tré til að selja ferðamönnum. Gaman að sjá það þar sem þessar tréfígúrur er að finna út um allt. Fórum svo á markað þar sem alla þessa útskornu muni var að finna. Keypti nokkrar gjafir þar handa fjölskyldunni minni – Fredrik var á leið til Íslands nokkrum dögum síðar svo hann sá um að koma þeim í réttar hendur. Eftir að hafa skoðað markaðinn hátt og lágt héldum við á flugvöllinn. Þá var komið að kveðjustund – Fredrik á leið til Svíþjóðar og ég til baka í strandhúsið til stelpnanna – eftir tveggja vikna viðburðaríkt ferðalag um Kenya. Það var með töluverðum trega sem leiðir skildu.

Næstu þremur dögum eyddi ég í Mombasa með stelpunum. Skoðuðum Fort Jesus í sem er gömul höfn byggð af Portúgölum á sextándu öld, mjög áhugavert. Lentum sama dag í karpi við sölumenn sem vildu selja mér hálsmen á 1000 shillinga og Joke sama hálsmen helmingi dýrara, lýsir sölumennskunni hérna ágætlega. Fórum í frábæra snorkl og höfrungaskoðunarferð á seglbát (með mótor). Höfrungarnir sáust reyndar ekkert mjög vel en snorklið var æði, fiskar í öllum regnbogans litum í tærum sjónum, skjaldbökur syndandi um, kóralar, skeljar og kuðungar. Áhöfnin um borð var líka stórskemmtileg, héldu okkur vakandi (eins og það hafi þurft) með því að syngja og dansa fyrir okkur eins og Kenýabúum einum er lagið! Um kvöldið fórum við út að borða á veitingastaðinn góða. Það var föstudagskvöld og staðurinn fullur af fólki – eingöngu mzungu enda um afar vestrænan stað að ræða. Næsta degi eyddum við svo í afslöppun. Skelltum okkur á ströndina og lágum þar heillengi. Fórum svo í bæinn, á arabamarkað. Þar kenndi ýmissa grasa, ég keypti mér pils (gat skeð), buxur (!) og skó, einu flíkurnar sem ég hef keypt hér úti til þessa. Um kvöldið tókum við svo rútu til Nairobi. Níu klukkutíma ferð og ekki sú þægilegasta, enda vegirnir hérna skelfilegir eins og áður hefur verið lýst. En við komumst á leiðarenda klukkan sex um morguninn. Klukkan eitt tók ég svo skólarútuna frá Nairobi til Nakuru. Mig langaði sko ekkert aftur í skólann eftir þetta frábæra ferðalag en það var víst ekki spurning um það. Sjö kennsluvikur eru nú ekki lengi að líða!

...fyrstu þrjár vikurnar af þessum sjö hafa allavega verið mjög fljótar að líða! Nú eru ekki nema fjórar vikur eftir af kennslunni, hætti að kenna 9. desember. Fyrir utan kennslu er stefnan tekin á ferðalög – þ.e. um helgar. Hef verið dugleg að stinga af um helgar fram að þessu og það verður sko engin breyting á því. Síðustu helgi var AIESEC ráðstefna ekki langt frá Nakuru. Skemmti mér vel þar og kynntist fullt af nýju fólki – fólki sem er hér á vegum AIESEC svona eins og ég. Það var mjög gaman að geta skipst á reynslusögum. Auk þess var ég með smá kynningu á Íslandi sem gekk bara vel. Fólk var mjög forvitið um þetta skrýtna land í norðri. Herdís er á leiðinni hingað á morgun og verður í fjórar vikur, ekkert smá gaman – enn meiri ástæða til að stinga af um helgar! Svo á ég von á nokkrum gestum til viðbótar. Fólk hefur svo sannarlega tekið sér hann Fredrik til fyrirmyndar – og ég er hæstánægð með það!

Næsta update verður að öllum líkindum up to date – ferðasagan búin og því hægt að snúa sér að líðandi stund!

Bless í bili!
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel