Katrín í Namibíu
 
 
Simba ...og það eru alltaf þrír tímar til Mombasa
8.11.05
Þessi færsla er hrakfallafærsla út í gegn, svo ef ykkur leiðist að lesa um seinheppni þá skuliði ekki lesa lengra - auk þess er þetta ansi löng færsla. Held að þetta sé næstsíðasti bútur ferðasögunnar - svo fáiði loks að heyra hvað ég er að bardúsa þessa dagana, það er sko ýmislegt skal ég segja ykkur!

Daginn eftir héldum við keyrslunni áfram, ferðinni að þessu sinni heitið til Amboseli, sem er þriðji vinsælasti þjóðgarðurinn í Kenya og stendur við landamæri Tanzaníu. Helsta aðdráttarafl hans er nándin við Kilimanjaro, hæsta fjall Afríku sem er í Tanzaníu rétt við landamærin. Í góðu skyggni blasir Kilimanjaro við í bakgrunni – hin villtu dýr Afríku í forgrunni.

Dagurinn fór allur í keyrslu – enda vegurinn slæmur og því afar seinfarinn. Komum aðeins við í Nairobi á leiðinni. Fórum á Java Coffeehouse þar sem ég smakkaði besta kaffi sem ég hef fengið í Kenýa. Kaffihúsið hefur – ólíkt öllu öðru hér í landi – vestrænt yfirbragð og var nánast eingöngu setinn mzungu eða hvítu fólki. Mjög sérstakt þar sem maður er vanur því að skera sig úr sökum litarháttar síns en ekki öfugt. Eftir að hafa drukkið besta kaffi í heimi héldum við áfram. Læt frekari lýsingu á ferðinni liggja á milli hluta.

Um sexleytið vorum við loks komin til Amboseli. Tókum því rólega um kvöldið, eftir að hafa borðað kvöldmat lögðumst við út undir stjörnubjartan Afríkuhimininn. Langaði helst að gista þar en það er víst ekki ráðlagt – sökum hættu á heimsókn frá hinum villtu dýrum þjóðgarðarins.

Morguninn eftir vöknuðum við á undan sólinni. Eftir dýrindis pönnukökumorgunmat hófst safaríið. Amboseli hefur allt annað yfirbragð en Masai Mara. Hér er allt mun þurrara og mikill sandur ólíkt grasigrónum sléttum Masai Mara. Það fyrsta sem við sáum var skari strúta, töldum 23 stykki sem spókuðu sig um á sandinum. Síðan sáum við dýrin eitt af öðru, fíla, flóðhesta, gíraffa, nashyrninga, ljón, buffalóa, antilópur, sebrahesta, gnúa að ógleymdu Kilimanjaro sem skartaði sínu fegursta í bakgrunninum. Hreint stórfenglegt. Í einu af fáum trjám sem er að finna í garðinum sáum við fimm hangandi slöngur og haminn sem þær höfðu skilið eftir, gaman að því.

Við stöldruðum ekki mjög lengi í Amboseli, uppúr hádegi héldum við áleiðis til Mombasa, enda afar löng ferð fyrir höndum. Við höfðum þó ekki keyrt í mikið meira en klukkutíma þegar vélin fór að hiksta. Stuttu síðar drapst á bílnum. Tilraunir til að koma honum í gang á ný reyndust árangurslausar. Eftir viðgerð af hálfu Steve sem aðallega fólst í því að líma einhverja hluta saman með límbandi eftir því sem ég best vissi, héldum við af stað á ný. Við komumst þó ekki lengra en í næsta þorp, Simba, þar sem Steve vildi kíkja aðeins betur á það sem miður hafði farið, við gerðum ráð fyrir að viðgerðin gæti tekið dálítinn tíma svo við settumst inn á næsta bar og pöntuðum einn Tusker hvort (Tusker er þjóðarbjórinn í Kenya). Barinn var afar frumstæður. Okkur vísað í bakgarðinn þar sem okkur langaði að sitja úti og njóta sólarinnar. Bakgarðurinn reyndist vera port sem tilheyrði nokkrum húsum. Þegar við birtumst þar ráku krakkarnir sem í húsunum bjuggu upp stór augu, hlógu og gjóuðu að okkur augunum. Ég reyndi að spjalla við þau á ensku en komst fljótt að því að enskukunnáttu þeirra var ábótavant þannig að ég notaði kunnáttu mína í Swahili til að ná sambandi við þau. Þar sem kunnátta mín saman stendur aðallega af kurteisisorðum, heilsum og kveðjum dugði samtalið skammt. Ég ákvað því að láta reyna á önnur mið, Steve hafði kennt mér tvö lög á Swahili á leiðinni svo ég að prófaði að syngja þau. ...og það virkaði, krakkarnir tóku undir, og ekki nóg með það, þau byrjuðu að dansa fyrir okkur. Við urðum himinlifandi, ekki á hverjum degi sem maður fær einkadanssýningu. Eftir lögin tvö héldu þau áfram að dansa og syngja. Við vorum svo heppin að vera með videomyndavél svo við náðum dansinum á filmu. Leyfðum þeim meira að segja að horfa á upptökuna í myndavélinni, gaman að fylgjast með viðbrögðum þeirra þegar þau sáu sig sjálf dansa, greinilega aldrei séð neitt þessu líkt áður. Við eyddum töluverðum tíma með krökkunum í bakgarðinum – þegar við rönkuðum við okkur héldum við að við værum orðin allt of sein og Steve löngu búinn að gera við bílinn. Svo var þó ekki, þegar við mættum á staðinn var Steve hálfur ofan í vélinni. Hann sagði okkur að hann vantaði bara eitt stykki, svo væri bíllinn tilbúinn á götuna. Stykkið þurfti hann að kaupa í næsta bæ. Við ákváðum að fá okkur smá göngutúr um Simba á meðan við biðum. Simba er afar frumstætt þorp en afar Afrískt. Það er líkt mörgum öðrum þorpum í Afríku einkum ætlað til viðskipta bænda á milli svo það sáust ekki mörg híbýli heldur aðallega sölubásar með öllum mögulegum varning. Það mátti greinilega sjá að mzungu er afar sjaldgæf sjón, allra augu beindust að okkur og voru börnin mörg hver hrædd við okkur, sum þeirra fóru jafnvel að gráta þegar við nálguðumst. Fólkið var samt afar vingjarnlegt. Að göngutúrnum loknum settumst við inn á veitingastað og fengum okkur kaffi á meðan við biðum eftir Steve. Eftir að hafa setið á veitingastaðnum í dágóðan tíma kom Steve til okkar og sagði að stykkið sem hann hafði fengið væri ekki af réttri stærð svo hann þurfti að fara aftur og ná í það rétta. Við sátum áfram á veitingastaðnum og biðum. Veitingastaðurinn virtist vera á afar vinsælum stað, krakkar þorpsins virtust ekki þreytast á að ganga framhjá og gjóa augunum á tvo mzungu sem þar sátu. Eftir dágóða setu kom Steve tilbaka – ekki með léttari brún en áður. Nú vantaði annað stykki í bílinn sem hann þurfti að nálgast í næsta bæ. Eftir að hafa náð í stykkið og eytt dágóðum tíma hálfur ofan í bílnum áttum við von á góðum fréttum – en okkur varð ekki að ósk okkar – Steve tjáði okkur að stykkið hefði ekki verið það rétta – hann þyrfti að fara alla leið til Nairobi til að fá það. Nú voru góð ráð dýr. Klukkan var farin að ganga sjö, og því farið að dimma. Við ræddum möguleikann á að taka rútu til Mombasa sem féll ekki í góðan jarðveg hjá Steve, stórhættulegt að ferðast svo seint. Hann gaf okkur tvo kosti – annars vegar að gista í næsta bæ (þar sem hótelkostur þar var trúlega betri en í Simba) og taka rútu til Mombasa snemma morguninn eftir, hins vegar að hann myndi keyra til Nairobi snemma morguninn eftir og ná í stykkið, gera við bílinn og halda keyrslunni áfram. Við ákváðum að láta reyna á fyrri kostinn þar sem við gerðum ráð fyrir að viðgerð bílsins gæti tekið lengri tíma í ljósi reynslu dagsins. Það varð úr, við húkkuðum far í næsta bæ og gistum á fyrsta hóteli sem við sáum. Þar var okkur sagt að fyrsta rúta til Mombasa færi klukkan fimm um morguninn og að keyrslan tæki um þrjá tíma. Steve bauðst til að vakna með okkur og sýna okkur hvar rútustöðin væri.

Morguninn eftir vorum við vöknuð klukkan 4:15. Rétt fyrir fimm bönkuðum við á dyrnar hjá Steve – engin viðbrögð. Við ákváðum því að leyfa Steve að sofa og freista þess að finna stoppistöðina sjálf. Fengum leiðsögn nokkurra unglingspilta sem vildu endilega bíða með okkur eftir rútunni. Það var enn hánótt þegar við mættum þar sem rútan stoppaði – diskótek bæjarins enn í fullu fjöri en annars kolniðamyrkur. Eftir hálftíma voru strákarnir orðnir þreyttir á biðinni og fóru. Við vorum ein eftir í myrkrinu. Ekkert bólaði á rútunni. Þegar tók að birta fór bærinn að lifna við í rólegheitumun. Fólk á leið í vinnu og í skóla og smátt og smátt fjölgaði á stoppistöðinni. En ekkert bólaði á rútunni. Eftir rúmlega klukkutíma bið kom loks matatu – á honum stóð Mombasa. Við urðum himinlifandi glöð – en gleðin stóð ekki lengi – þetta var vitlaust skilti, bíllinn var ekki á leið til Mombasa – sem kenndi okkur enn og aftur að ekki er hægt að taka neitt sem gefið í Afríku. Enn biðum við og biðum, keyptum okkur madazi í morgunmat (einhverskonar kleinuþríhyrningur mjög kenýskt), spjölluðum við fólkið á stoppustöðinni (og um það), hlustuðum á tónlist og sungum soldið saman til að stytta okkur stundir. Þegar klukkan var næstum orðin átta og rútan ekki komin var okkur hætt að lítast á blikuna. Við ákváðum að hringja í Steve og heyra hvort þetta hefði nokkuð verið misskilningur. Steve sagðist koma strax og var mættur um hæl. Fimm mínútum eftir að Steve bjargvættur mætti á staðinn birtist rútan. Við urðum himinlifandi glöð – svekkt yfir að hafa ekki hringt fyrr í Steve – og hoppuðum uppí rútuna, vorum loks á leiðinni til Mombasa eftir sólarhringstöf. Fredrik hafði spurt mig hvað ég héldi að við þyrftum að bíða lengi eftir rútunni þegar við mættum á stoppistöðina klukkan fimm. Ég hafði svarað í djóki – svona þrjá klukkutíma – svo sprungum við úr hlátri. En sá hlær best sem síðast hlær – við biðum í nákvæmlega þrjá klukkutíma eftir rútunni.

Við vorum allavega komin um borð, Mombasa beið okkar eftir þrjá tíma – eða það héldum við. Með í för voru þrjár hænur og ein geit, auk þess sem farangursrými var af skornum skammti svo við þurftum að sitja með töskurnar okkar á hnjánum, ekki þægilegustu aðstæður í heimi en það sem hélt okkur á lífi var – Mombasa eftir þrjá tíma. Eftir þrjá klukkutíma stoppuðuðum við á bensínstöð – hálftímastopp var okkur sagt. Við urðum soldið undrandi – héldum að við værum rétt ókomin til Mombasa og spurðum því bílstjórann hvað væri langt eftir – um þrír tímar, svaraði hann um hæl. ÞRÍR TÍMAR!!! Við áttum ekki til orð, þriggja tíma ferðin sem við lögðum í reyndist vera a.m.k. helmingi lengri. Þetta kenndi okkur enn og aftur að taka ekkert sem gefið í Afríku og bjuggum við þá til málsháttinn – það eru alltaf þrír tímar til Mombasa, svona svipað og allir vegir liggja til Róm – eða þannig. Við héldum því áfram keyrslunni, í svitakófi undir bakpokunum. Sem betur fer er Fredrik mjög skemmtilegur ferðafélagi sem lætur ekki svona smámuni pirra sig svo það stytti ferðina til muna – hlógum af eigin aulafyndni og eigin seinheppni meiripartinn af því sem eftir var ferðarinnar. Rúmum þremur tímum seinna, eða klukkan u.þ.b. þrjú vorum við svo loks komin til Mombasa. Það lá við að við orkuðum ekki að fara út úr rútunni, við vorum búin að koma okkur svo þægilega fyrir. En okkur var ekki til setunnar boðið – næst á dagskrá var að finna litla húsið sem beið okkar á ströndinni við Indlandshaf. Ferðin þangað reyndist örlítið lengri en við áttum von á – um einn og hálfur tími eftir matatu, ferju, aftur matatu og einn matatu í viðbót – en að lokum komumst við á áfangastað þreytt en sátt við að vera loks komin á áfangastað. Við mættum brosandi í móttökuna og sögðum til nafns. Konan leit á okkur og sagði svo – því miður, við leigðum út húsið ykkar í gær, þið mættuð ekki svo við héldum að þið hefðuð hætt við. Það myrkvaði yfir okkur Fredrik, búið að leigja út strandhúsið okkar eftir allt þetta ferðalag. Við höfðum að sjálfsögðu ekki haft rænu á að láta vita að okkur seinkaði. Mig langaði að fara að gráta. Stuttu seinna bætti konan við – en það er eitt þriggja herbergja hús laust sem þið getið fengið. Húsið var aðeins dýrara og alltof stórt en það var allt í lagi – við höfðum þak yfir höfðuðið yfir nóttina. Eftir að hafa pústað smá stund í strandhúsinu okkar, ákváðum við að fara í matarleit, höfðum varla borðað ætan bita síðan við borðuðum madazi klukkan sex um morguninn. Okkur hafði verið sagt að það væri veitingastaður ekki mjög langt frá svo við ákváðum að ganga þangað. Lýsingin á þessari göngu verður lík fyrri lýsingum í þessari færslu – veitingahúsið lét að sjálfsögðu ekki á sér kræla. Eftir að hafa gengið í hálftíma ákváðum við að spyrja hvort við værum á réttri leið, og jú, það reyndist vera, svo við héldum göngunni áfram. Loks komum við að veitingastaðnum, þreytt og ánægð og hlökkuðum til að fá almennilegan mat. En nei, þegar við komum var okkur sagt að verið væri að gera upp veitingastaðinn og hann væri því lokaður í máðnuð – vonbrigði, en eftir allt sem á undan var gengið fannst okkur þetta bara eðlilegt, höfðum lært af deginum. Hótelvörðurinn sagði okkur frá öðrum veitingastað ekki langt frá, hann mælti samt með að taka matatu þangað. Og það gerðum við – mættum reyndar á vitlausan stað og fengum fylgd að rétta staðnum en ég læt frekari lýsingar á því liggja á milli hluta. Við vorum loksins mætt á veitingastaðinn og það engan smá veitingastað. Hann var á ströndinni, gófið þakið sandi og opinn í annan endann svo maður gat notið útsýnisins yfir Indlandshaf út í ystu æsar. Veitingastaðurinn var í dýrari kantinum, enda afar flottur við vorum ánægðust í heimi með að geta loks slappað af og fengið almennilegan mat að borða. Og namminamm, ég pantaði mér heimsins besta fisk og Fredrik heimsins besta sjávarréttalasagna – veit ekki hvort það var af því að við vorum svo þreytt og svöng en maturinn smakkaðist allavega betur en venjulega! Við tókum matatu til baka, södd og sátt, kíktum aðeins á ströndina seinna um kvöldið, lágum undir stjörnubjörtum himninum – yndislegt.
Skrifaðu hér
 
 
 
 
Sætust
Emil og Isabel