Þvælingur eftir Kenýa endilangri... Lamu - Kisumu - Mombasa ...já og gleðileg jól!
Bara að plata! Hér kemur eitt blogg í viðbót! ...en þetta verður samt örugglega síðasta bloggið fyrir jól, því nú er ég að fara til Lamu - sem er yndisleg eyja í Indlandshafi - að liggja í sólbaði fram að jólum með henni Irene, finnsku vinkonunni minni. Rétt fyrir jól mun ég svo þvælast á hinn enda Kenýa til að halda upp á jólin með honum Jowi og riiisastóru fjölskyldunni hans. Eftir það er stefnan tekin á ströndina á ný til að halda upp á áramótin með Lalla, Freydísi og Jónasi, vei, vei, vei! ...og svo er það Afríkureisan mikla! Á jafnvel von á nokkrum ferðafélögum, fólk hefur tekið auglýsingu mína í síðasta bloggi alvarlega, ekkert nema gaman að því! Blogga nú áður en ég held í reisuna til að segja ykkur frá hvernig jólin eru haldin hátíðleg í Kenýa!
En þangað til...
Gleðileg jól elskurnar mínar!
Sakna ykkar allra!
Ástarkveðjur,
Katrín