Átti frábær áramót á ströndinni með Freydísi, Jónasi og Lalla. Flugeldasýning, stjörnuljós og kokteill á ströndinni – hefði ekki getað verið betra. Hef síðustu daga verið á ferðalagi með Lalla um Kenya. Fórum með honum Jowi vini mínum og konunni hans til Lake Baringo og Lake Bogoria. Þar er meðal annars að finna jarðhitasvæði, minnir ekki mikið á svæðin okkar heima en það var mjög áhugavert að sjá þetta. Fórum og sigldum á Lake Baringo, innan um krókódíla og flóðhesta, mjög spennandi. Á morgun er stefnan svo tekin á Tanzaniu – ferðin mikla loksins að hefjast! Ásta frænka kemur að hitta mig á Zanzibar og ætlum við að ferðast saman niður eftir Afríku endilangri – vei!
Lofa ekki reglulegu bloggi meðan á ferðinni stendur – en ég geri mitt besta!